26.08.2026

Arion bank­i, Stefnir og Vörður fá viður­kenningu sem Fyrir­mynd­ar­fyrir­tæki

Átján íslensk fyrirtæki hlutu nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum fyrir árin 2025–2026 við hátíðlega athöfn á Nauthóli þann 20. ágúst síðastliðinn. Þar á meðal voru Arion banki, Stefnir og Vörður.

Viðurkenningarnar eru veittar af Stjórnvísi, Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq Iceland. Viðurkenningarnar voru afhentar af Bjarna Benediktssyni, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins.

Hin fyrirtækin, sem hlutu viðurkenningu í ár, eru Alvotech, Bera, Drangar, Eik fasteignafélag, Heimar, Icelandair Group, Íslandssjóðir, Kvika banki, Orkan IS, Reiknistofa bankanna, Reitir fasteignafélag, Sjóvá, Skagi, Styrkás og VÍS.

Markmið verkefnisins er að efla traust í viðskiptalífinu og styrkja innviði fyrirtækja með því að hvetja til skýrra vald- og ábyrgðarskipta meðal stjórna og stjórnenda.’

Hrefna Kristín Jónsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustu hjá Verði:

„Við hjá Verði erum stolt af því að vera áfram í hópi þeirra fyrirmyndarfyrirtækja sem leggja áherslu á góða stjórnarhætti. Góðir stjórnarhættir eru lykill að betri ákvarðanatöku og því að ná árangri í rekstri. Viðurkenningin skapar því aukið traust gagnvart Verði og styrkir ímynd okkar og orðspor.“

Jón Óttar Birgisson, stjórnarformaður hjá Stefni:

„Stjórn Stefnis hefur alla tíð lagt ríka áherslu á góða stjórnarhætti og telur þá vera veigamikinn þátt í því að Stefnir hefur haslað sér völl sem leiðandi sjóðastýringarfyrirtæki á Íslandi. Raunar er gaman að segja frá því að árið 2012 varð Stefnir fyrst íslenskra fyrirtækja til að hljóta viðurkenninguna „Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum“. Við erum afar stolt af því setja þetta góða fordæmi í stjórnarháttum á sama tíma og við viljum stuðla að vönduðum stjórnarháttum í þeim félögum sem við komum að með eignarhaldi í gegnum framtakssjóði okkar og í gegnum virkt eignarhald í skráðum félögum á markaði.“

Frá hægri: Hrefna Kristín Jónsdóttir og Helena Hilmarsdóttir frá Verði; Bryndís Ýrr Pálsdóttir og Kolbrún Kristín Antonsdóttir frá Arion banka, Kristín María Dýrfjörð og Jón Óttar Birgisson úr stjórn Stefnis.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira