01.11.2017

Arion banki styður áfram við ís­lensk­an hand­knatt­leik

Styrktarsamningur Arion banka við Handknattleikssamband Íslands (HSÍ) hefur verið endurnýjaður og bankinn verður því áfram bakhjarl íslensk handknattleiks. Það voru þeir Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, og Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ, sem undirrituðu samninginn í höfuðstöðvum Arion banka föstudaginn 27. október.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„Handboltahjartað hefur slegið sterkt hér í Arion banka um árabil og því afar ánægjulegt að bankinn skuli áfram vera bakhjarl HSÍ. Við í bankanum hlökkum til að standa við bakið á íslensku handboltafólki í öllum þeim spennandi verkefnum sem framundan eru.“

Strákarnir í karlalandsliðinu létu sjá sig við þetta tækifæri og stilltu sér upp á mynd ásamt starfsfólki Arion banka. Landsliðið hefur í nægu að snúast enda er undirbúningur í fullum gangi fyrir EM í Króatíu í janúar en í síðustu viku spiluðu strákarnir t.d. tvo vináttuleiki við Svía.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira