10.10.2019

Arion banki styrk­ir Krabba­meins­félag Ís­lands um eina millj­ón króna

Í tilefni af bleikum október afhenti Arion banki í dag Krabbameinsfélagi Íslands eina milljón króna í styrk. Helga Halldórsdóttir, forstöðumaður mannauðs hjá Arion banka, afhenti Helga Björnssyni, fjármálastjóra Krabbameinsfélagsins, styrkinn. Arion banki hefur um langt árabil stutt við starf Krabbameinsfélagsins og að vanda eru í ár bleikir fánar að húni víða fyrir framan starfsstöðvar bankans í október.

Október er mánuður árvekni- og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélags Íslands og í ár er það undir slagorðinu ,,Þú ert ekki ein“. Lögð er áhersla á mikilvægi stuðnings og vináttu þegar kona greinist með krabbamein, þegar tilveran breytist snögglega og við tekur tími sem getur reynst afar erfiður. Stuðningur fjölskyldu og vina skiptir miklu máli í öllu ferlinu, allt frá greiningu, en einnig faglegur og félagslegur stuðningur sem Krabbameinsfélagið veitir endurgjaldslaust.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira