01.02.2016

Arion banki styrk­ir stofn­un Vig­dís­ar Finn­boga­dótt­ur í er­lend­um tungu­málum

Í gær undirritaði Höskuldur H. Ólafsson bankastjóri samning fyrir hönd Arion banka um veglegan styrk til Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum. Er bankinn meðal tíu annarra fyrirtækja úr íslensku atvinnulífi sem skrifa undir samninga um styrki til stofnunarinnar. Undirritunin fór fram í hátíðarsal Háskóla Íslands að viðstaddri frú Vigdísi Finnbogadóttur, Illuga Gunnarssyni mennta- og menningarmálaráðherra og fjölda annarra gesta.

Fyrirtækin sem standa að samningunum eru Arion banki, Icelandair Group, Alvogen, Radisson BLU Hótel Saga, Bláa lónið, Kvika, Reginn, Íslandsbanki, Íslandshótel, Landsbankinn og N1. Alls nema styrkir fyrirtækjanna 33,5 milljónum króna á samningstímanum.

Á horni Suðurgötu og Brynjólfsgötu mun rísa bygging Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur, en hún mun hýsa alþjóðlegu tungumálamiðstöðina auk kennslu og rannsókna í erlendum tungumálum. Þar verður einnig aðstaða fyrir ráðstefnur og sýningar um framandi tungumál og menningu sem opnar verða gestum og gangandi. Sérstök áhersla verður lögð á að miðla upplýsingum um tengsl Íslands við umheiminn í sögu og samtíð til erlendra ferðamanna. Í þessu nýja þekkingarsetri felast gríðarleg tækifæri til nýsköpunar, ekki síst í tengslum við vísindastarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu. Með framlögum sínum taka fyrirtækin höndum saman við Háskóla Íslands um að hrinda þessu metnaðarfulla verkefni í framkvæmd.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira