09.07.2020

Arion banki tek­ur á móti um­sókn­um um stuðningslán

Nú hefur miðlægur umsóknarvefur stjórnvalda vegna stuðningslána til fyrirtækja verið opnaður á Ísland.is. Arion banki er tilbúinn að taka á móti umsóknum sem fara í gegnum vefinn og hefur verið unnið að því að gera ferlið við úrvinnslu þeirra einfalt og skilvirkt með það að markmiði að veita fyrirtækjum sem eru í viðskiptum góða og skjóta þjónustu.

Stuðningslán eru ætluð til að styðja við lítil og meðalstór fyrirtæki sem glíma við erfiðleika vegna samdráttar í rekstri vegna COVID-19 faraldursins. Stuðningslánin geta numið allt að 10% af tekjum fyrirtækis á rekstrarárinu 2019, að hámarki 40 milljónir króna.

Nánari upplýsingar um umsóknarferlið fyrir stuðningslán fyrirtækja er að finna á island.is.

Samkomulag um tímabundinn greiðslufrest (frysting lána)

Samkomulagi um tímabundinn greiðslufrest á lánum fyrirtækja vegna COVID-19 hefur verið framlengt til 30. september 2020 en það rann út 30. júní síðastliðinn. Fyrirtæki sem sækja um frestun greiðslna geta fengið frystingu að hámarki í allt að sex mánuði en þó ekki lengur en út árið 2020 (síðasti gjalddagi er 1. desember 2020). Þau fyrirtæki sem eru nú þegar með frestun greiðslna á sínum lánum geta ekki sótt um áframhaldandi frestun umfram þessa sex mánuði, sem er hámark frystingar samkvæmt samkomulaginu.

Nánari upplýsingar um greiðslufrest fyrirtækja má nálgast hér á vefsíðu Arion banka.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira