18.09.2017

Arion banki til fyrir­myndar í Kringl­unni

Útibú Arion banka í Kringlunni hefur verið valið fyrirmyndarfyrirtæki Kringlunnar árið 2017 af Rekstrarfélagi Kringlunnar. Þetta er þriðja árið í röð sem útibúið hlýtur þennan heiður og fékk því afhentan sérstakan bikar því til staðfestingar auk hefðbundinnar viðurkenningar.

Verðlaunin eru veitt að undangenginni þjónustukönnun á vegum rekstrarfélagsins og hlaut Arion banki í þriðja sinn fullt hús stiga í öllum flokkum sem skoðaðir voru. Meðal þeirra atriða sem horft var til eru ásýnd fyrirtækis, snyrtilegt starfsfólk, móttaka viðskiptavina, viðmót og framkoma.

Ingvar Breiðfjörð, forstöðumaður Arion banka í Kringlunni, tók á móti viðurkenningunni:

„Það er auðvitað afar ánægjulegt fyrir okkur að fá einkunnina framúrskarandi þriðja árið í röð og ég er mjög stoltur af starfsfólkinu okkar að ná þessum árangri. Þessa dagana er útibúið lokað vegna breytinga og við erum full tilhlökkunar að opna nýtt útibú þann 21. september. Þá munum við, eins og áður, leggja áherslu á þægilegri bankaþjónustu fyrir viðskiptavini okkar og auðvitað einbeita okkur að því að vera áfram til fyrirmyndar.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira