30.04.2019

Arion banki til­einkar sér nýj­ar meg­in­reglur UNEP FI um ábyrga banka­starf­semi

Nýlega undirritaði Arion banki yfirlýsingu þess efnis að bankinn muni fylgja sex nýjum meginreglum UNEP FI um ábyrga bankastarfsemi í sátt við samfélag og umhverfi.

UNEP FI er vettvangur umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna og yfir 240 fyrirtækja og stofnana í fjármálageiranum víðs vegar um heim. Þar er fjallað er um áskoranir í samfélags- og umhverfismálum. Markmið meginreglnanna, sem voru mótaðar af 28 alþjóðlegum bönkum og UNEP FI, er að tengja bankastarfsemi við alþjóðleg viðmið og skuldbindingar á borð við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og Parísarsamkomulagið. Meginreglur UNEP FI verða teknar formlega til samþykktar á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York í haust að undangengnum sex mánaða umsagnartíma.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

,,Við hjá Arion banka leggjum áherslu á að starfa á ábyrgan hátt í sátt við samfélag og umhverfi og nýjar meginreglur UNEP FI um ábyrga bankastarfsemi ríma vel við okkar stefnu. Það er því gleðiefni að fylgja þessum nýju viðmiðum og von okkar er að þau muni nýtast Arion banka á vegferð sjálfbærni og samfélagsábyrgðar. Með aðildinni sýnum við einnig stuðning við mikilvæg alþjóðleg markmið og sáttmála. Við horfum björtum augum til framtíðar og hlökkum til góðs alþjóðlegs samstarfs um ábyrga bankaþjónustu.“

Sex meginreglur um ábyrga bankastarfsemi:

  1. Aðlögun: Við munum aðlaga stefnu okkar og leggja okkar af mörkum til að mæta þörfum einstaklinga og markmiðum samfélagsins, eins og þau eru skilgreind í Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, Parísarsamkomulaginu og öðrum viðeigandi lögum og reglum. Við munum einbeita okkur að þeim þáttum sem við höfum mest áhrif á.

  2. Áhrif: Við munum stöðugt leitast við að auka jákvæð áhrif og draga úr neikvæðum áhrifum af starfsemi okkar, vörum og þjónustu á einstaklinga og umhverfi, m.a. með því að stýra áhættu.

  3. Viðskiptavinir: Við munum vinna að sjálfbærni á ábyrgan hátt með viðskiptavinum okkar og styðja við starfsemi sem skapar sameiginlegt virði fyrir núlifandi og komandi kynslóðir.

  4. Hagsmunaaðilar: Við munum vinna náið með viðeigandi hagsmunaaðilum, af árvekni og ábyrgð, til að ná fram markmiðum samfélagsins.

  5. Stjórnarhættir og markmið: Við munum hrinda skuldbindingum okkar gagnvart meginreglunum í framkvæmd með skilvirkum stjórnarháttum og menningu sem einkennist af ábyrgri bankastarfsemi. Við setjum okkur opinber markmið í tengslum við þá þætti sem við höfum mest áhrif á.

  6. Gegnsæi og ábyrgð: Við munum reglulega fara yfir framkvæmd okkar á meginreglunum og miðla árangri; jákvæðum og neikvæðum áhrifum af starfseminni og framlagi til markmiða samfélagsins, á ábyrgan og gegnsæjan hátt.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira