04.05.2018

Arion banki til­nefnd­ur til þekk­ingar­verð­laun­anna 2018

Félag viðskipta- og hagfræðinga (FVH) stóð fyrir Þekkingardeginum nýverið. Á dagskránni voru ýmis áhugaverð erindi tengd þekkingu og verðmætum. Þekkingarverðlaunin 2018 voru afhent af forseta Íslands, en Arion banki, ásamt fyrirtækjunum HB Granda, Skaginn 3X og Vísir hf., var tilnefndur til verðlaunanna í ár. Það var Vísir hf. sem hlaut þekkingarverðlaunin í ár en verðlaunin hafa verið veitt frá árinu 2000. Óskum við þeim til hamingju með verðlaunin.

Þau fyrirtæki sem tilnefnd voru til verðlaunanna þóttu öll hafa sýnt yfirburði og mikinn árangur í þróun og innleiðingu stafrænna lausna með jákvæðum áhrifum á rekstur fyrirtækis, betri framleiðni og þjónustu. Fulltrúar fyrirtækjanna fjögurra kynntu það sem fyrirtækin hafa verið að gera á sviði stafrænna lausna og var það Iða Brá Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs, sem kynnti þær breytingar sem orðið hafa á bankaþjónustu og ræddi áherslu Arion banka á þægilega bankaþjónustu.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira