06.12.2018

Arion banki til­nefnd­ur til verð­laun­anna markaðs­fyrir­tæki ársins 2018

Arion banki hefur verið tilnefndur til verðlaunanna markaðsfyrirtæki ársins 2018 sem veitt eru af ÍMARK.

Markaðsverðlaun ÍMARK falla í skaut því fyrirtæki sem dómnefnd telur að hafi náð framúrskarandi árangri í markaðsmálum undanfarin tvö ár og sannað þykir að sýnilegur árangur hafi náðst. Val dómnefndar byggir á ítarlegu ferli þar sem lagt er mat á fagmennsku við markaðsstarfið, árangur og að fjárhagslegt öryggi sé til staðar.

Fjögur fyrirtæki eru tilnefnd til verðlaunanna að þessu sinni: Arion banki, Dominos, NOVA og Nox medical. Tilkynnt verður um sigurvegara verðlaunanna á Hilton Reykjavík Nordica þann 13. desember nk. og mun frú Eliza Jean Reid afhenda verðlaunin.

ÍMARK hefur veitt Markaðsverðlaunin frá árinu 1991 en þetta er í 26. skipti sem verðlaunin eru veitt. Markmið verðlaunanna er að stuðla að aukinni fagmennsku í markaðsstarfi íslenskra fyrirtækja.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira