13.07.2018

Arion banki val­inn besti fjár­festingar­bank­inn á Ís­landi

Alþjóðlega fjármálatímaritið Euromoney hefur valið Arion banka besta fjárfestingarbankann á Íslandi árið 2018. Niðurstaðan var tilkynnt við hátíðlega athöfn í London fyrr í vikunni.

Við val á besta fjárfestingarbankanum horfði dómnefnd tímaritsins meðal annars á árangur og reynslu fjárfestingarbankasviðs Arion banka við að veita viðskiptavinum sínum fjölbreytta fjárfestingarbankaþjónustu á borð við fyrirtækjaráðgjöf, miðlun verðbréfa og gjaldeyris auk þess að bjóða viðskiptavinum upp á aðgang að sjálfstæðu greiningarefni frá virtustu greiningardeild landsins.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Euromoney veitir Arion banka verðlaun því að mati tímaritsins var Arion banki besti bankinn á Íslandi í fyrra og besti fjárfestingarbankinn árið 2016.

Lýður Þór Þorgeirsson, framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs Arion banka:

„Starfsfólk fjárfestingarbanka Arion banka er öflugt og reynslumikið og hefur verið leiðandi í markaðsviðskiptum, fyrirtækjaráðgjöf og í útgáfu á greiningarefni um íslenskt efnahagslíf og skráð fyrirtæki. Á síðasta ári vann fyrirtækjaráðgjöf bankans m.a. tvö stærstu fyrirtækjaviðskipti hér á landi og gegndi leiðandi hlutverki við farsæla skráningu bankans sjálfs í kauphöll. Þá hefur bankinn verið með hæstu markaðshlutdeild í hlutabréfaviðskiptum í Kauphöll Íslands síðustu árin ásamt því að vera með sterka stöðu á gjaldeyrismarkaði og í skuldabréfaútgáfu. Við finnum að viðskiptavinir bankans kunna að meta fagleg vinnubrögð og að vera í traustum höndum með sín viðskipti og er ég því ánægður með viðurkenninguna sem fjárfestingarbankasviði Arion banka er sýnd."

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira