15.12.2017

Arion banki varar við svika­póstum

Að undanförnu hefur orðið vart við tilraunir óprúttinna aðila til að komast yfir fjárhagsupplýsingar neytenda, þar með talið viðskiptavina Arion banka. Þar er m.a. átt við kortanúmer, innskráningarupplýsingar fyrir netbanka og fleira.

Í tölvupóstunum sem um ræðir er viðtakandi m.a. beðinn um að opna hlekk í tölvupósti þar sem óskað er eftir kortanúmeri, gildistíma og öryggisnúmers auk „Verified by Visa“ númers sem korthafi fær sent í SMS skilaboðum. Þessir tölvupóstar eru sendir út undir nöfnum og/eða merkjum þekktra fyrirtækja, bæði innlendra og erlendra, og því full ástæða til að vera á varðbergi. Í þessum póstum er oft tilkynnt um að neytandi eigi von á endurgreiðslu eða að vegna þjónusturöskunar af einhverju tagi þurfi viðtakandi umsvifalaust að bregðast við.

Við hjá Arion banka teljum fulla ástæðu til að vara viðskiptavini okkar eindregið við slíkum tölvupóstum enda um að ræða þekkta aðferð til að blekkja fólk. Af þessum sökum viljum við biðja viðskiptavini okkar að hafa eftirfarandi í huga:

  • Korthafar eiga ekki undir neinum kringumstæðum að gefa upp „Verified by VISA“ öryggisnúmer sem sent er GSM síma þegar boð um endurgreiðslu berast. Enda er ekki þörf á því númeri þegar gerð er endurgreiðsla heldur á þetta númer aðeins við þegar korthafar eru sjálfir að versla á netinu.

  • Korthafar eiga ekki undir neinum kringumstæðum að gefa upp þriggja stafa öryggisnúmer sem er aftan á kortunum þegar um endurgreiðslur er að ræða. Korthafar sem fá boð um inneign hjá söluaðila ættu í öllum tilfellum að hafa samband við viðkomandi aðila til þess að fá upplýsingar um inneign og passa að gefa engar upplýsingar upp fyrr en staðfesting liggur fyrir.

  • Aldrei gefa upp PIN númer greiðslukortsins þíns til annars aðila, hvort sem er í síma, tölvupósti eða á vefsíðu.

  • Gefðu aldrei upp lykilorð netbankans þíns í tölvupósti og ekki skrá það inn á öðrum vefsíðum en sjálfum netbankanum (https://netbanki.arionbanki.is/).

  • Varastu pósta á lélegri íslensku. Erlend fyrirtæki senda venjulega allt á ensku.

  • Ekki opna hlekki í tölvupóstum sem þú kannast ekki við.

  • Korthafar sem gefa upp allar öryggisupplýsingar í tengslum við kortið til rangra aðila geta átt á hættu að bera sjálfir hugsanlegt tjón.

  • Arion banki birtir ekki persónulegar upplýsingar í tölvupóstum til viðskiptavina og við biðjum þig aldrei að svara til að staðfesta einhverjar persónulegar eða öryggistengdar upplýsingar.

  • Arion banki mun aldrei biðja þig um að gefa upp upplýsingar á borð við vegabréfsnúmer, kreditkortanúmer, CVV/CVC kóða eða gildistíma greiðslukorta í tölvupósti.

Þú finnur fleiri öryggisráð á arionbanki.is/oryggi. Nánari upplýsingar og ráðgjöf vegna öryggismála veitir öryggisstjóri Arion banka á netfanginu oryggisstjori@arionbanki.is.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira