05.11.2024

Arion banki varð­veit­ir Par­ís­arkyndil­inn til fram­búð­ar

Íþróttasamband fatlaðra afhenti Arion banka nýverið Parísarkyndilinn til varðveislu en hann var framleiddur í afar takmörkuðu upplagi og notaður við hið margfræga kyndilhlaup í aðdraganda Ólympíuleikanna og Paralympics.

Það voru Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka og Iða Brá Benediktsdóttir aðstoðarbankastjóri sem veittu kyndlinum mótttöku fyrir hönd bankans frá Þórði Árna Hjaltested formanni ÍF og Ólafi Magnússyni framkvæmdastjóra fjármála- og afrekssviðs ÍF.

Samstarf ÍF og Arion banka teygir sig aftur til upphafs Íþróttasambands fatlaðra þegar Búnaðarbankinn var og hét. Búnaðarbankinn var fyrsti viðskiptabanki ÍF og allar götur síðan hefur sambandið átt í farsælu samstarfi við bankann. Af því tilefni ákvað stjórn ÍF að afhenda Arion banka kyndilinn til varðveislu til allrar frambúðar.

„Það er ánægjulegt að geta afhent Arion banka þennan merka kyndil en hann er tákn um þær fórnir sem okkar öfluga íþróttafólk hefur fært til þess að vera öflugir fulltrúar Íslands á fremsta sviði íþróttanna. Við hjá Íþróttasambandi fatlaðra höfum í áratuginna rás verið einstaklega ánægð með samstarfið við bankann og það er okkar íþróttafólki allt að vita til þess að það séu einstaklingar og öflug fyrirtæki sem eru að liðsinna þeim í baráttunni á meðal þeirra bestu,“ sagði Þórður Árni Hjaltested formaður ÍF við tilefnið.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira
2. október 2026

Arion banki fellur frá boðuðum hækkunum og leitast við að halda hækkunum innan við 2,5%

Þann 23. júlí síðastliðinn tilkynntum við um hækkun ýmissa liða í verðskrá okkar sem áttu að taka gildi tveimur mánuðum síðar, eða 23. september. Um var að ræða gjöld sem ekki höfðu hækkað í fjölmörg ár, meðal annars vegna þjónustu þar sem bankinn nýtir þjónustu utanaðkomandi aðila, svo sem dreifingarfyrirtækja sem höfðu hækkað sín gjöld umfram gjöld bankans. Þessari boðuðu verðskrárbreytingu hefur ekki verið hrint í framkvæmd. 

Lesa meira
2. október 2026

Vinningshafar í Sumarlaunaleik Arion

Sumarlaunaleikur Arion er orðinn fastur liður hjá mörgum ungmennum á sumrin. Í ár fengu þau sem lögðu sumarlaunin sín inn á reikning hjá Arion sjálfkrafa þátttökurétt í leiknum og áttu þar með möguleika á að hreppa glæsilega vinninga. 

Lesa meira