29.01.2019

Arion banki veit­ir ORF líf­tækni lang­tíma­fjár­mögnun í sam­starfi við Evr­ópska fjár­festinga­sjóð­inn

Arion banki veitti ORF líftækni hf. nýverið langtímafjármögnun að fjárhæð samtals 3,7 milljónir evra, til frekari uppbyggingar félagsins, í samstarfi við Evrópska fjárfestingasjóðinn, European Investment Fund. Markmiðið með fjármögnuninni er að þróa nýjar Bioeffect vörur, nýjar vörulínur og nýja tækni. Einnig að fjármagna sókn Bioeffect vörulínunnar inn á nýja markaði, fyrst og fremst Bandaríkin. Þannig leggur lánveitingin grunn að áframhaldandi uppbyggingu, vexti og útflutningi ORF líftækni, en hjá fyrirtækinu og erlendum dótturfélögum þess starfa nú um 75 manns að fjölþættum vísinda-, sérfræði- og framleiðsluverkefnum.

Arion banki er eina fjármálafyrirtækið á Íslandi sem starfar með Evrópska fjárfestingarsjóðnum að hagstæðri fjármögnun fyrirtækja á borð við ORF líftækni, sem leggja áherslu á nýsköpun. Samstarfið gerir bankanum kleift að bjóða litlum og meðalstórum fyrirtækjum, sem hyggjast innleiða hvers kyns nýjungar í starfsemi sinni, hagstæða fjármögnun, hvort sem um er að ræða innleiðingu á nýjum vörum, ferlum eða þjónustu. Markmiðið er að veita fyrirtækjum aðgang að fjármagni á lægri vöxtum að ákveðnum skilyrðum uppfylltum og styðja þannig við nýsköpun hér á landi og örva atvinnulíf, rannsóknir og þróun.

ORF Líftækni er forystufyrirtæki á heimsvísu á sviði plöntulíftækni. Fyrirtækið framleiðir sérvirk prótein sem notuð eru í BIOEFFECT húðvörur fyrirtækisins, seld til læknisfræðilegra rannsókna og nýtt í önnur þróunarverkefni fyrirtækisins. ORF hefur þróað tækni til að framleiða slík prótein í byggi, en aðferðin er afrakstur tveggja áratuga vísinda- og þróunarstarfs. BIOEFFECT vörurnar hafa hlotið fjölda alþjóðlegra viðurkenninga fyrir virkni og gæði og þær eru seldar í um 30 löndum.

ORF hefur vaxið hratt á undanförnum árum, einkum í krafti velgengni BIOEFFECT vörumerkisins. Velta fyrirtækisins var ríflega 1,5 milljarðar króna á seinasta ári og um 80% tekna félagsins koma erlendis frá. ORF stefnir á áframhaldandi sterkan vöxt á næstu árum og að leggja þannig sitt af mörkum til útflutnings á íslensku hugviti.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira