28.07.2025

Arion er banki ársins að mati Euromo­ney

Fjármálatímaritið Euromoney hefur valið Arion sem banka ársins á Íslandi árið 2025. Er þetta annað árið í röð sem bankinn hlýtur þessa viðurkenningu. Í rökstuðningi Euromoney kemur fram að bankinn hafi styrkt sig í sessi sem fremsti banki landsins með nýsköpun á sviði stafrænna lausna, markvissri stefnu og góðri afkomu.

Euromoney vísar meðal annars til þess að enn eitt árið hafi Arion appið verið valið besta bankaappið á Íslandi af viðskiptavinum bankanna í könnun Maskínu. Einnig horfir Euromoney til þess hvernig Arion, í nánu samstarfi við dótturfélögin Vörð og Stefni, hefur hrint stefnu sinni í framkvæmd, m.a. með því að bjóða viðskiptavinum afar fjölbreytta fjármálaþjónustu sem er að langstærstum hluta aðgengileg í Arion appinu.

Euromoney bendir á góða arðsemi af starfseminni, skilvirkni í rekstri og vöxt Varðar, sem hefur verið umfram vöxt tryggingamarkaðarins hér á landi. Einnig er tekið tillit til árangurs á sviði markaðsviðskipta en Arion hefur undanfarin ár verið með mestu hlutdeild allra markaðsaðila á hlutabréfamarkaði hér á landi og var jafnframt á síðasta ári með mestu markaðshlutdeild á skuldabréfamarkaði.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira