05.12.2023

Arion er banki ársins að mati The Ban­ker – þriðja ár­ið í röð

Hið virta fjármálatímarit, The Banker, sem gefið er út af The Financial Times, hefur valið Arion sem banka ársins á Íslandi árið 2023. Er þetta þriðja árið í röð sem Arion banki hlýtur nafnbótina.

Í rökstuðningi sínum vísar The Banker til forystu Arion hér á landi sem feli í sér sóknarfæri til frekari vaxtar á norðurslóðum. Einnig er bent á víðtæka þekkingu og samlegð á sviði fyrirtækjaþjónustu og -ráðgjafar, markaða og sjóðastýringar í gegnum dótturfélagið Stefni. Þessir þættir feli í sér að bankinn sé vel í stakk búinn að grípa tækifæri á norðurslóðum og þá ekki aðeins á sviði lánveitinga og fyrirtækjaráðgjafar.

The Banker nefnir jafnframt áframhaldandi stafvæðingu þjónustunnar og áherslu bankans á að hún sé einföld og þægileg frá upphafi til enda. Vísað er til bílalána þar sem rafrænar þinglýsingar eru nú hluti af lánaferlinu sem tekur viðskiptavini aðeins nokkrar mínútur að fara í gegnum.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira