25.06.2026
Arion framtíð
Launabónus fyrir ungt fólk, spennandi fríðindi og fjármálafræðsla á mannamáli
Í apríl 2025 kynnti Arion samstæðan til sögunnar nýtt og öflugt fríðindakerfi, Arion fríðindi, sem miðar að því að hámarka þann ábata sem viðskiptavinir Arion og Varðar hafa af því að nýta sér hina margvíslegu þjónustu Arion samstæðunnar. Þeim mun meiri þjónustu sem viðskiptavinir Arion nýta sér – í bankaviðskiptum, tryggingum, sjóðum og svo framvegis – því meiri fríðindi og sérkjör fá þeir.
Nú er komið að Arion framtíð
Nú er komið að næsta skrefi í þróun Arion fríðinda sem er sérstaklega hugsað fyrir ungt fólk á aldrinum 18 til 24 ára og nefnist Arion framtíð. Markmiðið með Arion framtíð er að styðja ennþá betur við ungt fólk þegar það tekur fyrstu skref sín á vinnumarkaði og byrjar að huga að framtíðarsparnaði og fyrstu fasteignakaupunum. Það gerum við með aðgengilegri fræðslu, margvíslegum fríðindum og sérkjörum sem raunverulega nýtast fólki á þessum fyrstu stigum fullorðinsáranna.
Ótal fríðindi og sérsniðin þjónusta fyrir markhópinn
Með Arion framtíð fær ungt fólk á aldrinum 18-24 ára margvísleg fríðindi, meðal annars sérstakan launabónus sem Arion bætir ofan á laun þess. Þá fær það frítt kreditkort (Bláa kortið), ódýrt í bíó, World Class og sund og alls konar önnur fríðindi og afslætti. Ekki er svo verra að hoppa frítt á Hopp-hjóli í sumar.
Heilsa og fjárhagslegt öryggi fara saman
Þegar einstaklingar ná 18 ára aldri taka þeir við aukinni ábyrgð á eigin fjármálum og öryggi. Á sama tíma missa margir þá tryggingavernd sem þeir nutu áður í gegnum foreldra sína. Þessi tímamót urðu kveikjan að þróun Heilsupakkans hjá Verði tryggingum og er ætlað að auðvelda ungu fólki að byggja upp eigið öryggisnet á fyrstu stigum fullorðinsáranna.
Grunnhugmyndin á bak við Heilsupakkann er einföld: Að ungt fólk tryggi sig áður en á reynir. Veikindi og önnur óvænt áföll gera ekki boð á undan sér og því skiptir máli að hafa viðeigandi vernd.
Pakkinn er í boði í tveimur útfærslum svo einstaklingar geti valið þá lausn sem hentar aðstæðum þeirra best. Sá smærri kostar helmingi minna en lítill bragðarefur sá stærri er u.þ.b. á pari við bragðarefinn.
Stærsta nýjungin: Launabónus
Samhliða Heilsupakkanum kynnum við nýja nálgun sem kallast Launabónus og jafngildir mótframlagi vinnuveitanda í viðbótarlífeyrissparnað. Launabónusinn nemur að lágmarki tveimur prósentum af mánaðarlaunum en að hámarki 35 þúsund krónum. Til að eiga rétt á launabónus þarf einstaklingur að vera í Arion framtíð, með Heilsupakkann og greiða í viðbótarlífeyrissparnað Arion, Lífeyrisauka. Bónusinn safnast upp yfir árið og er greiddur út þegar einstaklingur endurnýjar Heilsupakkann fyrir næsta tímabil.
Sterkur fjárhagslegur grunnur fyrir framtíðina
Heilsupakkinn og Launabónusinn endurspegla áherslu okkar á mikilvægi langtímahugsunar. Annars vegar er ungu fólki hjálpað að byggja upp vernd gegn óvæntum atburðum sem geta haft áhrif á heilsu og afkomu. Hins vegar er hvatt til reglulegs sparnaðar og fjárhagslegrar ábyrgðar með viðbótarlífeyrissparnaði.
Fyrir marga unga einstaklinga eru þetta fyrstu skrefin í að byggja upp eigið öryggisnet. Kostnaðurinn er ekki mikill í samhengi hlutanna en ávinningurinn getur sannarlega verið það ef aðstæður breytast. Markmiðið er því ekki aðeins að bjóða viðbótar þjónustu heldur einnig að stuðla að fyrirhyggju og fjárhagslegu öryggi.
Spurðum unga fólkið einfaldlega hvað það vildi
„Við þróun Arion framtíðar lögðumst við í mikla greiningarvinnu til að tryggja að fríðindin og þjónustan endurspegluðu raunverulega það sem ungt fólk á aldrinum 18 til 24 ára vill fá út úr því að vera í viðskiptum við okkur,“ segir Iða Brá Benediktsdóttir, aðstoðarbankastjóri Arion banka og framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs.
„Við tókum fjölmörg djúpviðtöl með það fyrir augum að kanna hvers konar fríðindi ungt fólk vill, hvers konar fræðsla gagnast því og hvar því þykir best að sækja sér upplýsingar og fræðslu.“
Iða Brá segir sérstaklega mikilvægt að hafa fræðslu um fjármál á mannamáli. „Svo er það einfaldlega þannig að það vantar markvissari fjármálafræðslu fyrir ungt fólk,“ segir Iða Brá. „Börnin okkar læra vissulega margt í skóla en fræðsla um fjármál og tryggingar virðast mæta afgangi. Þarna þurfum við að gera betur til að stuðla að fjárhagslegu heilbrigði þeirra í framtíðinni. Við erum því að svara ákalli um aukna fræðslu á þessu sviði hjá ungu fólki svo það eigi auðveldara með að taka upplýstar og vel ígrundaðar ákvarðanir um framtíðina.“
Þetta eru aðeins fyrstu skrefin hjá Arion framtíð þar sem margt spennandi er í bígerð nú í sumar sem verður kynnt á næstu mánuðum.