08.07.2019

Ás­geir H. Reyk­fjörð ráð­inn að­stoð­ar­banka­stjóri Arion banka

Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason hefur verið ráðinn aðstoðarbankastjóri Arion banka og mun hann hefja störf með haustinu. Um nýtt hlutverk er að ræða innan bankans.

Ásgeir hefur undanfarin ár starfað sem framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Kviku banka hf. Hann var meðlimur í framkvæmdahópi um losun fjármagnshafta árið 2015 og áður starfaði hann hjá MP banka sem yfirlögfræðingur, hjá LOGOS lögmannsþjónustu í Reykjavík og London og hjá Straumi fjárfestingarbanka.

Ásgeir er með lögmannsréttindi og hefur lokið lagaprófi frá Háskólanum í Reykjavík.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka:

,,Það er mikill fengur fyrir okkur í Arion banka að fá Ásgeir til liðs við okkur. Hann býr yfir mjög góðri þekkingu á fjármálastarfsemi og því hvernig auka megi arðsemi í þeirri starfsemi í kjölfar breytts starfsumhverfis banka. Ég er því sannfærður um að hans kraftar eiga eftir að nýtast vel í bankanum og hlakka til samstarfsins.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira