01.02.2023

Ávöxt­un á liðnu ári og áherslur fjár­festingar­stefnu Lífeyris­auka 2023

Árið sem var að líða markar eitt mest krefjandi ár á fjármálamörkuðum frá fyrri hluta síðustu aldar. Heimsfaraldur, stríðsástand, þrálát verðbólga og hækkandi vextir voru helstu áskoranir síðasta árs. Nær allir markaðir í heiminum lækkuðu umtalsvert á árinu en hlutabréf lækkuðu að jafnaði meira en skuldabréf. Slíkar markaðsaðstæður undirstrika mikilvægi þess að vera með dreift eignasafn til þess að standast sveiflur á mörkuðum. Lífeyrisauki leggur upp úr því að fjárfesta í ólíkum eignaflokkum, atvinnugreinum og landsvæðum til þess að dreifa áhættu sem mest.

Þróun markaða

Á síðasta ári voru hlutabréf sá eignaflokkur sem lækkaði hvað mest. Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands (OMXI10) lækkaði um 26,5% en heimsvísitala hlutabréfa (e. MSCI World Index) lækkaði um 19,5% í bandaríkjadal eða um 12,0% í íslenskum krónum á árinu. Fjárfestingarleiðir sem vega þyngst í hlutabréfum skiluðu því lægstri ávöxtun á árinu. Þó ert vert að nefna að árin á undan, þegar gengisþróun hlutabréfa var jákvæð, skiluðu þær leiðir sem vógu þyngst í hlutabréfum mestri ávöxtun. Horft fram á við geta tækifæri myndast á hlutabréfamarkaði eftir miklar lækkanir líkt og sáust á síðasta ári en þá býðst fjárfestum að kaupa hlutabréf á hagstæðari verðkennitölum.

Nafnávöxtun verðtryggðra ríkisskuldabréfa var á bilinu -8,4% til 5,0% á tímabilinu en óverðtryggðra töluvert lakari eða -17,0% til 2,0%. Yfirlýsing fjármálaráðherra í október sl. í tengslum við uppgjör og slit ÍL-sjóðs hafði töluverð áhrif á ávöxtun skuldabréfasafnsins. Bréf ÍL-sjóðs höfðu töluverð áhrif til lækkunar á ávöxtun fjárfestingarleiða Lífeyrisauka fyrir utan Innlán og Erlend verðbréf.

Hækkun stýrivaxta á árinu og aðrir óvissuþættir í efnahagsmálum leiddu til þess að ávöxtunarkrafa skuldabréfa hækkaði og þar með lækkaði virði þeirra en á móti vó þrálát verðbólga. Horfur á skuldabréfamörkuðum til lengri tíma eru hins vegar góðar. Fjárfestum býðst nú að kaupa skuldabréf á mun hærri ávöxtunarkröfu en stóð til boða í lágvaxtaumhverfi síðustu ára.

Ávöxtun 2022

Ávöxtun síðustu ára hjá Lífeyrisauka hefur verið afar góð en árið 2021 var með þeim bestu frá upphafi. Í takt við gang markaða á liðnu ári var ávöxtun á eignasafni Lífeyrisauka árið 2022 þó neikvæð. Nafnávöxtun fjárfestingarleiða Lífeyrisauka var á bilinu -9,8% til 9,3% sem samsvarar -17,5% til 0,0% raunávöxtun. Hlutabréf voru sá eignaflokkur sem má einna helst rekja neikvæðu ávöxtunina til, bæði erlend og innlend. Lífeyrisauki 1 er sú leið er tilheyrir Ævilínu sem hefur mest vægi hlutabréfa og jafnframt sú leið sem skilar lægstri ávöxtun yfir árið.

Þegar horft er á lengri tíma sparnað eins og séreignarsparnað er mikilvægt að minna sig á að ávöxtun til lengri tíma er það sem mestu máli skiptir og ekki er óeðlilegt að það verði nokkrar sveiflur á milli ára. Langtímaávöxtun Lífeyrisauka hefur verið góð en á myndinni hér fyrir neðan má sjá ávöxtun á ársgrundvelli til 10 ára m.v. 31.12.2022. 10 ára nafnávöxtun er á bilinu 4,8% til 7,2% og raunávöxtun 1,4% til 3,7%. Aðalatriðið er að meðalávöxtun sjóðsins til lengri tíma er mikilvægari en sveiflur í ávöxtun til skamms tíma.

Fjárfestingarstefna 2023

Starfsstjórn Lífeyrisauka endurskoðar fjárfestingarstefnu sjóðsins að minnsta kosti árlega og hefur nú undirritað nýja fjárfestingarstefnu fyrir árið 2023. Síðustu ár hefur verið lögð áhersla á að auka vægi og áhættudreifingu erlendra eigna. Í nýrri stefnu er haldið áfram á þeirri vegferð en helstu breytingar eru þær að vægi erlendra eigna er aukið en á móti er dregið úr vægi innlendra hlutabréfa. Fjárfestingarstefna sjóðsins í heild er birt á vefsíðu sjóðsins en hana má nálgast hér.

Markmið um hlutfall eignaflokka hjá Lífeyrisauka 1, 2, 3 og 4 breytast eins og hér segir:

  • Innlend skuldabréf óbreytt í öllum fjárfestingarleiðum

  • Innlend hlutabréf lækki úr:

    • 17% í 16% hjá Lífeyrisauka 1

    • 15% í 14% hjá Lífeyrisauka 2

    • 12% í 11% hjá Lífeyrisauka 3

    • Óbreytt hjá Lífeyrisauka 4

  • Erlend hlutabréf óbreytt í öllum fjárfestingarleiðum

  • Erlend skuldabréf óbreytt í öllum fjárfestingarleiðum

  • Erlendar sérhæfðar fjárfestingar hækki úr:

    • 6% í 7% hjá Lífeyrisauka 1

    • 6% í 7% hjá Lífeyrisauka 2

    • 4% í 5% hjá Lífeyrisauka 3

    • Óbreytt hjá Lífeyrisauka 4

Markmið um hlutfall eignaflokka hjá Lífeyrisauka - Erlend verðbréf er óbreytt á milli ára.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira