22.01.2021

Bank­inn til þín – á fjar­fundi

Arion banki veitir nú viðskiptavinum sínum enn þægilegri bankaþjónustu með því að bjóða upp á fjarfundi með ráðgjafa. Í stað þess að heimsækja útibú geta viðskiptavinir nú notað snjallsímann, spjaldtölvuna eða tölvuna til að fá ráðgjöf og þjónustu augliti til auglitis, hvar sem er.

Það er einfalt og öruggt að eiga samskipti við bankann á fjarfundi. Við höfum tekið saman stutt kynningarmyndband sem sýnir hvernig viðskiptavinir tengjast fjarfundi, myndbandið má finna hér .

Við getum veitt ýmsa þjónustu í gegnum fjarfundabúnað bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki:

Einstaklingar

  • Fjármálaráðgjöf vegna íbúðalána

  • Sparnaðarráðgjöf

  • Ráðgjöf vegna lífeyrismála

  • Ráðgjöf vegna trygginga

  • Útgreiðsluráðgjöf vegna lífeyrissparnaðar

  • Ráðgjöf vegna greiðsluerfiðleika

  • Önnur ráðgjöf eftir samkomulagi

Fyrirtæki

  • Ráðgjöf vegna fjármögnunar

  • Aðstoð við vörur og þjónustu

  • Notendaaðstoð

  • Önnur ráðgjöf eftir samkomulagi

Við hvetjum viðskiptavini til þess að nýta sér þessa þægilegu nýjung í þjónustu bankans.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira