01.06.2016
Barnahlaup Melabúðarinnar og Arion banka
Barnahlaup Melabúðarinnar og Arion banka fór fram miðvikudaginn 25. maí. Markmið með hlaupinu var að hvetja æskuna til hreyfingar og hollra lífshátta.
Hlaupið fór fram á grassvæðinu við Vesturbæjarlaugina og var hlaupið í þremur aldursflokkum:
8 ára og yngri – 400 metra hlaup
9-10 ára – 800 metra hlaup
11-12 ára – 1.200 metra hlaup
Um 250 börn komu saman og hlupu undir dyggri stjórn Anítu Hinriksdóttur frjálsíþróttakonu úr ÍR og heims- og Evrópumeistara í 800 metra hlaupi ungmenna.
Stuðningsaðilar hlaupsins voru Melabúðin og Arion banki og heppnaðist hlaupið afar vel eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.