25.06.2019

Bene­dikt Gísla­son ráð­inn banka­stjóri Arion banka

Stjórn Arion banka hefur ráðið Benedikt Gíslason í starf bankastjóra og mun hann hefja störf 1. júlí næstkomandi. Benedikt hefur umfangsmikla reynslu af störfum á íslenskum fjármálamarkaði undanfarna tvo áratugi.

Benedikt hóf störf hjá FBA (síðar Íslandsbanka) árið 1998, sinnti margvíslegum stjórnunarstörfum hjá Straumi-Burðarás, var framkvæmdastjóri markaðsviðskipta hjá FL Group og framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs MP banka. Benedikt var varaformaður starfshóps stjórnvalda um afnám fjármagnshafta á árunum 2013-2016. Hann sat í stjórn Kaupþings á árunum 2016-2018. Benedikt hefur verið ráðgjafi Kaupþings í málefnum Arion banka og hefur setið í stjórn bankans frá árinu 2018. Benedikt er verkfræðingur frá Háskóla Íslands.

Brynjólfur Bjarnason, stjórnarformaður Arion banka:

„Benedikt hefur mjög skýra sýn á framtíð bankans og hvernig eigi að mæta þeim áskorunum sem fjármálafyrirtæki standa frammi fyrir á næstu árum. Rekstrarumhverfi fjármálafyrirtækja um allan heim er að breytast hratt, ekki síst með auknu vægi stafrænnar fjármálaþjónustu. Það er jafnframt mikill styrkur fyrir Arion banka að fá til forystu einstakling með jafnmikla reynslu og þekkingu og Benedikt býr yfir.“

Benedikt Gíslason, verðandi bankastjóri Arion banka:

„Ég er fullur tilhlökkunar að takast á við þetta spennandi verkefni. Arion banki er gott fyrirtæki og gegnir mikilvægu hlutverki. Ég þekki bankann vel og hlakka til kynnast honum og hans öfluga starfsfólki enn betur. Verkefnið framundan er að halda áfram að þróa starfsemi og þjónustu bankans og veita viðskiptavinum góða og nútímalega fjármálaþjónustu. Arion banki nýtur ákveðinnar sérstöðu á íslenskum fjármálamarkaði þegar horft er til stóru bankanna þriggja sem almenningshlutafélag skráð í kauphallir á Íslandi og í Svíþjóð.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira