25.04.2016

Besta ís­lenska nem­enda­fyrir­tækið verður val­ið 27. apríl

Lokaumferðin í samkeppni Ungra frumkvöðla, Junior Achievement á Íslandi, um nemendafyrirtæki ársins fer fram í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, miðvikudaginn 27. apríl. Dómnefnd hefur þegar valið 15 fyrirtæki af þeim 60 sem nemendur hafa stofnað í fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla á árinu 2016 og tilkynnt verður næstkomandi miðvikudag, að lokinni keppni, hvaða fyrirtæki verður fyrir valinu sem Nemendafyrirtæki ársins. Arion banki er einn af aðalbakhjörlum Ungra frumkvöðla.

Með fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla er frumkvöðlastarf kynnt fyrir framhaldsskólanemum með það að markmiði að efla frumkvöðlaanda meðal ungmenna og þjálfa frumkvöðla framtíðarinnar. Árið 2016 tóku á fjórða hundrað nemenda í átta framhaldsskólum þátt og er útlit fyrir að fjöldinn verði enn meiri á næstu árum. Markmiðið er að gefa meirihluta íslenskra nemenda færi á að kynnast frumkvöðlastarfi af eigin raun í námi sínu.

Samtökin Ungir frumkvöðlar efla íslenska nýsköpunarmenningu með átaki sínu í menntaskólum og bætast þar með við þau átaksverkefni sem fyrir eru á háskólastigi (Startup Reykjavík, Startup Energy Reykjavík) og á grunnskólastigi (Nýsköpunarkeppni grunnskólanema). Öllu þessu starfi er ætlað að hvetja unga fólkið til þess að tileinka sér nýsköpun í starfi sínu, en margt stendur enn í vegi fyrir evrópskum frumkvöðlum, svo sem aðgangur að áhættufjármagni og regluverk.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira