25.01.2016

BG12 sel­ur eignar­hlut sinn í Bakka­vör

Gengið hefur verið frá sölu á um 46% hlut BG12 slhf. í breska félaginu Bakkavor Group Ltd. Kaupandi er félag í eigu bandarískra fjárfestingasjóða í stýringu hjá The Baupost Group L.L.C. og bræðranna Ágústs Guðmundssonar, forstjóra Bakkavarar Group, og Lýðs Guðmundssonar, stjórnarformanns Bakkavarar Group, en bræðurnir áttu fyrir um 38% í Bakkavor Group. Söluverð hlutar BG12 er rúmir 147 milljónir punda. Miðað við það er heildarverðmæti hlutafjár Bakkavarar Group um 320 milljónir punda.

Stærstu eigendur BG12 eru Arion banki, Lífeyrissjóður verzlunarmanna, Gildi - lífeyrissjóður ásamt fleiri lífeyrissjóðum og fagfjárfestum. Sameinaði lífeyrissjóðurinn og dótturfélag Klakka selja jafnframt sinn 5% hlut í Bakkavor Group og kaupendur skuldbinda sig til að leggja fram kauptilboð í alla aðra útistandandi hluti í félaginu, rétt um 11%, á sömu kjörum.

Salan kemur í kjölfar söluferlis Bakkavor Group Ltd. sem var í umsjón breska bankans Barclays.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira