26.08.2025

Breyt­ing á dags­lok­um banka­daga - tek­ur gildi frá 8. sept­em­ber 2025

Reiknistofa bankanna hefur ákveðið að frá og með 8. september næstkomandi verða dagslok í innlánakerfum færð frá kl. 21:00 til miðnættis, kl. 24:00.

Markmiðið með breytingunni er að koma enn betur til móts við nútíma viðskiptahætti með því að hafa dagslok bankakerfa í samræmi við almanaksdaga og styðja þannig við sveigjanlegri opnunartíma og samfellda þjónustu.

Bankadagar verða áfram virkir dagar og færslur sem berast á frídögum verða áfram bókaðar á næsta virka dag.

Í tilkynningu frá Reiknistofu bankanna segir að breytingin muni nýtast almenningi, fyrirtækjum og stofnunum sem treysta á hraða og áreiðanlega afgreiðslu bankaviðskipta á kvöldin.

Við hvetjum viðskiptavini og samstarfsaðila til að kynna sér áhrif breytingarinnar á sín viðskipti og hafa samband við okkur ef frekari upplýsinga er þörf í síma 444 7000, í gegnum netspjallið á arionbanki.is eða með því að senda okkur póst á netfangið arionbanki@arionbanki.is.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira