20.06.2019

Breyt­ingar á eignar­haldi Tra­velCo hf.

Arion banki hefur eignast allt hlutafé í TravelCo hf. og hyggst finna félaginu nýja framtíðareigendur svo fljótt sem auðið er. TravelCo hf var stofnað í kjölfar falls Primera Air og rekur ferðaskrifstofur á Íslandi, í Danmörku, Svíþjóð, Noregi og Finnlandi. Aðeins er um að ræða breytingu á eignarhaldi en dagleg starfsemi og þjónusta ferðaskrifstofanna helst óbreytt. Markmið Arion banka er að tryggja áframhaldandi starfsemi ferðaskrifstofanna og hagsmuni bankans.

Starfsemi TravelCo á Íslandi hefur farið fram undir merkjum ferðaskrifstofanna Heimsferða og Terra Nova og gengur starfsemi þeirra vel.

Andri M. Ingólfsson, stofnandi TravelCo:

„Það eru vissulega tímamót, bæði fyrir mig persónulega og félagið, nú þegar nýir aðilar taka við því. Mér er efst í huga þakklæti til alls þess frábæra starfsfólks sem ég hef starfað með og hefur tekið þátt í uppbyggingu félagsins á undanförnum árum. TravelCo er eitt öflugasta fyrirtæki Norðurlanda á sviði ferðaþjónustu og ég óska félaginu og starfsfólki þess alls hins besta í framtíðinni sem ég veit að verður björt.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira