30.09.2019

Breyt­ingar á Pri­o­rity Pass heim­sókn­ar­gjaldi

Gjald vegna heimsókna með Priority Pass á betri stofur flugvalla mun hækka úr 2.900 kr. í 3.900 kr. frá og með 1. október 2019. Priority Pass veitir aðgang að yfir 1.200 betri stofum á flugvöllum víða um heim þar sem hægt er að njóta veitinga í ró og næði. Aðgangurinn er óháður flugfélagi og því farrými sem ferðast er á.

Nánari upplýsingar má finna í Priority Pass appinu og á vefsíðunni www.prioritypass.com.

Korthafar Arion banka með Premium World eða Platinum Business Travel kort geta einnig nýtt sér ferðafríðindi Airport Companion Europe Appsins frá Dragon Pass og heimsótt yfir 1.100 betri stofur í yfir 100 löndum og 200 borgum. Heimsóknargjald fyrir hverja heimsókn er EUR 27.

Airport Companion Europe Appið frá Dragon Pass veitir einnig afslátt á völdum veitingastöðum á flugvöllum víða um heim þar á meðal Keflavíkurflugvelli.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira