18.09.2018

Breyt­ingar á úti­búa­neti Arion banka

Þann 7. október mun Arion banki opna nýtt útibú í Garðabæ og í nóvember opnum við aftur eftir breytingar í Vesturbæ Reykjavíkur. Útibúið í Garðabæ verður á nýjum stað í Hagkaupum við Litlatún en í Vesturbæ verður útibú bankans áfram í húsnæði Hótel Sögu sem er nýuppgert. Þar mun bankinn deila húsnæði með Póstinum. Á nýju ári mun Arion banki svo flytja útibú sitt á Akureyri á Glerártorg.

Nýju útibúin eru öll hönnuð með stafrænar þjónustuleiðir Arion banka í huga. Markmiðið er að gera þjónustu bankans aðgengilegri og þægilegri fyrir viðskiptavini. Staðsetning útibúanna er valin með það í huga að þau séu í leiðinni fyrir fólk sem er að sinna daglegum erindum og áhersla er lögð á sveigjanlegri þjónustutíma.

Sérstaklega er horft til útibús Arion banka í Kringlunni sem hefur mælst vel fyrir hjá viðskiptavinum. Starfsfólk aðstoðar viðskiptavini bankans og kennir á stafrænar lausnir. Með hjálp fjarfundarbúnaðar verður unnt að njóta ítarlegri þjónustu og ráðgjafar sem bankinn býður upp á.

Útibú Arion banka í Grundarfirði mun sameinast útibúinu í Stykkishólmi 5. nóvember. Áfram verður alhliða hraðþjónustubanki í Grundarfirði þar sem m.a. er hægt að taka út og leggja inn seðla, greiða reikninga og millifæra. Starfsfólki í Grundarfirði hefur verið boðið starf í sameinuðu útibúi í Stykkishólmi.

Þróunin í útibúanetinu tekur mið af mikilli eftirspurn eftir stafrænum þjónustuleiðum bankans en komum í útibú hefur fækkað á sama tíma og ásókn í stafrænar leiðir bankans hefur aukist.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira