08.03.2018

Breyt­ingar á úti­búa­neti – þægi­legri og að­gengi­legri banka­þjónusta

Með tilkomu nýrra stafrænna þjónustuleiða eru að verða miklar breytingar á því hvar, hvenær og hvernig viðskiptavinir kjósa að sinna sínum fjármálum. Á næstu vikum og mánuðum mun Arion banki ráðast í breytingar á útibúaneti bankans til að aðlaga það að þessum nýju þjónustuleiðum sem allar miða að því að gera þjónustu bankans aðgengilegri og þægilegri fyrir viðskiptavini.

Lögð verður áhersla á sveigjanlegri þjónustutíma, betra aðgengi að hraðbönkum og öðrum sjálfsafgreiðslutækjum, aukinn stuðning við stafrænar þjónustuleiðir og gott aðgengi að fjármálaráðgjöf. Þá er einnig stefnt að því að nýta betur húsnæði bankans, fækka fermetrum og auka hagkvæmni í rekstri.

Sterkari þjónustukjarnar

Annars vegar verða útibú bankans í Borgartúni, á Bíldshöfða og Smáratorgi í Kópavogi efld. Öll veita þau víðtæka þjónustu, en útibúin eru svokallaðir þjónustukjarnar, líkt og útibúin í Borgarnesi, á Selfossi og á Akureyri. Í þjónustukjörnum er lögð áhersla á almenna fjármálaþjónustu og ráðgjöf sérfræðinga á öllum helstu sviðum fjármála einstaklinga og fyrirtækja.

Jafnframt verður þjónusta í þjónustuveri efld. Bankinn mun áfram horfa til sveigjanlegri afgreiðslutíma og fjölbreyttra samskiptaleiða í takt við þarfir viðskiptavina en í dag er m.a. veitt þjónusta og ráðgjöf í gegnum síma, samfélagsmiðla, netspjall og tölvupóst.

Aðgengilegri þjónusta

Hins vegar miða breytingarnar að því að einfalda mörg af smærri útibúum bankans og gera þau aðgengilegri með m.a. nýjum staðsetningum og sveigjanlegri afgreiðslutíma. Áhersla verður á almenna bankaþjónustu og stuðning við stafrænar þjónustuleiðir auk þess sem boðið verður upp á ráðgjöf hjá sérfræðingum bankans í gegnum fjarfundarbúnað. Byggt verður á góðri reynslu af nýju og endurbættu útibúi Arion banka í Kringlunni en viðskiptavinir bankans hafa tekið hinu nýja Kringluútibúi vel. Innlitum í útibúið hefur fjölgað og ánægja verið með þær nýjungar sem þar hafa verið kynntar, m.a. fjarfundi með ráðgjöfum bankans.

Helstu breytingar á útibúaneti Arion banka

Sameiningar útibúa

Starfsemi útibúa Arion banka í Garðabæ og Hafnarfirði verður í sumar að hluta til sameinuð þjónustukjarna bankans á Smáratorgi í Kópavogi. Á sama tíma mun bankinn opna nýtt útibú í alfaraleið með það að markmiði að veita íbúum og viðskiptavinum sem eiga leið um Garðabæ og Hafnarfjörð þægilegri bankaþjónustu. Við hönnun nýja útibúsins er horft til útibús Arion banka í Kringlunni en þar er áhersla lögð á sveigjanleika í afgreiðslutíma og gott aðgengi að stafrænum lausnum auk þess sem sérfræðingar bankans veita ráðgjöf í gegnum fjarfundarbúnað.

Í maí mun útibú Arion banka í Mosfellsbæ sameinast þjónustukjarna bankans við Bíldshöfða í Reykjavík. Jafnframt mun útibú bankans á Ólafsfirði sameinast útibúinu á Siglufirði.

Áfram verða alhliða hraðþjónustubankar í Mosfellsbæ, Firði í Hafnarfirði og á Ólafsfirði þar sem m.a. er hægt að taka út og leggja inn seðla, greiða reikninga og millifæra.

Rótgróin útibú fá ný heimili

Útibú Arion banka á Akureyri, Blönduósi, Hellu og í Vík í Mýrdal munu öll flytja í nýtt húsnæði. Unnið er að því að velja nýtt húsnæði en við val á nýjum staðsetningum verður einkum horft til góðs aðgengis, möguleika á sveigjanlegri afgreiðslutíma og sólarhringsaðgengi að sjálfsafgreiðslulausnum.

Endurbætur á Vesturbæjarútibúi

Útibú Arion banka við Hagatorg í Vesturbæ Reykjavíkur mun taka gagngerum breytingum. Loka verður útibúinu tímabundið vegna framkvæmdanna en á þeim tíma verða hraðbankar að sjálfsögðu aðgengilegir.
Ekki verður hjá því komið að þessum breytingunum fylgi ákveðið rask fyrir viðskiptavini en bankinn mun kappkosta að lágmarka það eins og frekast er unnt.

Spurt og svarað vegna breytinga á útibúaneti Arion banka

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira