15.08.2017

Breyt­ingar standa yf­ir í úti­búi Arion banka í Kringl­unni

Nú standa yfir breytingar í útibúi Arion banka í Kringlunni. Breytingarnar snúa bæði að húsnæðinu og þjónustunni sem þar verður veitt. Á meðan á breytingunum stendur, eða fram til 21. september, verður aðeins hægt að nýta hraðbanka útibúsins þar með talinn gjaldeyrishraðbankann sem afgreiðir evrur, Bandaríkjadollara, danskar krónur og bresk pund. Þegar framkvæmdunum lýkur mun bankinn kynna til leiks aukið aðgengi að þægilegri bankaþjónustu.

Við höfum tekið saman svör við ýmsum spurningum sem kunna að vakna vegna breytinganna á sérstakri síðu sem vísað er á hér fyrir neðan. Ef þú finnur ekki svarið við þínum spurningum eða hefur einhverjar spurningar eða ábendingar hvetjum við þig til að senda okkur tölvupóst á arionbanki@arionbanki.is.

Spurt og svarað vegna breytinga í Kringlunni

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira