20.01.2017

Breytt korta­tíma­bil

Í mars 2017 verður breyting á kreditkortatímabili okkar. Eftir breytinguna verða kortatímabilin frá 27. til 26. næsta mánaðar í stað 22. til 21. næsta mánaðar líkt og verið hefur.

Gjalddagi kreditkortareikninga verður óbreyttur, þ.e. annar dagur hvers mánaðar eða næsti virki dagur þar á eftir, lendi hann á frídegi.

Kortatímabilin í kringum breytinguna verða:

  • 22. janúar til 21. febrúar – til greiðslu á gjalddaga 2. mars 2017

  • 22. febrúar til 26. mars – til greiðslu á gjalddaga 3. apríl 2017

  • 27. mars til 26. apríl – til greiðslu á gjalddaga 2. maí 2017

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira