14.02.2022

Breytt­ur opn­unar­tími út­búa

Undanfarin ár höfum við hjá Arion banka gert breytingar á þjónustu okkar í takt við breyttar þarfir viðskiptavina. Við höfum aðlagað okkur að nýrri nálgun í bankaþjónustu þar sem við leggjum enn meiri áherslu á ráðgjöf ásamt góðu aðgengi að stafrænum þjónustuleiðum.

Núna opna útibúin okkar kl.10, sjá frekari upplýsingar um opnunartíma hér.

Bankinn til þín

Ávallt er hægt að bóka tíma í ráðgjöf eða fá upplýsingar um vörur og þjónustu bæði í síma og á fjarfundi, sú þjónusta er opin alla virka daga kl. 9-16.

Ef spurningar vakna ekki hika við að hafa samband við okkur með því að senda okkur póst á arionbanki@arionbanki.is, hringja í þjónustuverið okkar í síma 444 7000 eða í gegnum netspjallið hér á arionbanki.is.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira