10.08.2018

Bú­ist er við yf­ir 2.000 þátt­tak­end­um á Arion banka mót­inu í fót­bolta

Gera má ráð fyrir rúmlega 2.000 þátttakendum í yfir 400 liðum á Arion banka mótinu í fótbolta sem haldið verður um helgina, 11.-12. ágúst, á félagssvæði Víkings í Fossvogi. Er þetta í níunda sinn sem mótið er haldið.

Arion banka mótið er fyrir 7. og 8. flokk stúlkna og drengja og er stærsta mótið þar sem bæði kynin spila á sama tíma. Mótið stendur yfir frá kl. 9.00-17.00 á laugardag og frá kl. 9.00-15.00 á sunnudag. Keppt verður á 18 völlum og verður mótið í Sparilandsbúningi. Bíbí, Blaki og Ari verða á svæðinu og allir þátttakendur fá glæsilegan glaðning og verðlaunapening ásamt máltíð.

Búast má við miklum fjölda fólks og skemmtilegri stemningu í Víkinni í Fossvogi um helgina þegar ungir fótboltaiðkendur ásamt stuðningsfólki koma saman.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira