29.02.2024

Cecilia ábyrgðar­maður Arion vegna aðgerða gegn peninga­þvætti

Cecilia Agneta Ståhle hefur tekið við hlutverki ábyrgðarmanns vegna aðgerða Arion banka gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Cecilia mun stýra sjálfstæðri einingu innan regluvörslu sem hefur það hlutverk að leiða vinnu við gerð og uppfærslu áhættumats til að bera kennsl á og meta hættu á peningaþvætti. Teymið mun einnig fylgja eftir innleiðingu á stefnum, stýringum, og verkferlum til að draga úr og stýra peningaþvættisáhættu. Þá mun það sinna reglubundnu eftirliti með framkvæmd bankans í þessum efnum.

Cecilia, sem jafnframt er staðgengill regluvarðar bankans, er viðskiptafræðingur frá BI Norwegian Business School í Osló. Hún hefur starfað hjá Arion banka frá því í maí 2022 og tók við sem staðgengill regluvarðar í maí 2023. Hún hefur yfir 20 ára reynslu af störfum á fjármálamarkaði, bæði á sviði rekstrar og innra eftirlits, en einna helst af aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Áður en hún hóf störf hjá Arion banka starfaði hún sem regluvörður sænska bankans Ikano Bank AB, sem er einnig með starfsemi í Danmörku, Noregi, Finnlandi, Bretlandi, Þýskalandi og Póllandi. Cecilia situr í stjórn Aros Kapital AB, sem er sænsk fjármálastofnun, og á þar sæti í endurskoðunar-, áhættu og lagahlítingarnefnd stjórnar.

Arion banki hefur unnið markvisst að því að efla fyrirkomulag varna gegn peningaþvætti í allri starfsemi sinni, ekki síst eftir að lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka tóku gildi í ársbyrjun 2019. Með því að koma á fót þessari sjálfstæðu eftirlitseiningu innan regluvörslu bankans er verið að gera þessum mikilvæga málaflokki enn hærra undir höfði. Að auki kom Arion banki í apríl 2022 á fót sérstakri einingu, viðskiptaeftirliti, skipuð reynslumiklu starfsfólki sem vinnur þétt með framlínu bankans við að fylgja eftir aðvörunum úr færslueftirlitskerfum og ábendingum frá starfsfólki um óhefðbundna viðskiptahegðun og atriði sem benda til aukinnar peningaþvættisáhættu.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
01. ágúst 2026

Tilkynning til viðskiptavina - færslur hafa verið leiðréttar

Vegna tæknilegs atviks tvöfölduðust færslur tímabundið hjá hluta viðskiptavina. Færslurnar hafa nú verið leiðréttar, en í kjölfarið kann að hafa myndast kostnaður, til dæmis vegna innistæðulausra færslna eða annarra gjalda sem rekja má til atviksins.

Lesa meira
31. júlí 2026

Færslur birtast tvisvar á færsluyfirliti – unnið að leiðréttingu

Vegna mistaka þá birtast færslur frá gærdeginum, 30. júlí, tvisvar sinnum í færsluyfirlitum greiðslukorta og geta haft áhrif á ráðstöfunarupphæð kortanna. Unnið er að leiðréttingu í samstarfi við Rapyd.

Lesa meira
29. júlí 2026

Afkoma Arion banka á öðrum ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 15,5% á öðrum ársfjórðungi 2026 og 14,6% á fyrri helmingi ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 30. júlí kl. 8:30.

Lesa meira