08.03.2016

Design­Match - Hrað­stefnu­mót á milli hönnuða og fram­leiðenda

Hvað er Design match?

Hönnunarmiðstöð stendur fyrir kaupstefnunni DesignMatch á HönnunarMars í samstarfi við Arion banka, föstudaginn 11. mars í höfuðstöðvum bankans.

DesignMatch má lýsa sem einskonar hraðstefnumóti milli hönnuða annars vegar og kaupenda og framleiðenda hins vegar. Hönnuðir fá gullið tækifæri til þess að kynna hugmyndir sínar og hönnun og nota öll sín bjargráð til þess að mynda viðskiptasambönd á persónulegum grundvelli. Viðskiptasambönd skipta nefnilega miklu máli þegar kemur að því að gera góða hugmynd að veruleika. Náið samtal á DesignMatch við réttan aðila getur reynst mikilvægur stökkpallur.

Kaupstefnur hafa borið ríkulegan ávöxt

Markmið Hönnunarmiðstöðvar með DesignMatch er að byggja brú milli hönnuða og þeirra sem vilja og geta greitt götu þeirra. Kaupstefnur fyrri ára hafa þegar borið ríkulegan ávöxt. Íslenskir hönnuðir hafa gert sig gildandi í hinum stóra heimi hönnunar og komist gegnum nálarauga framleiðanda; framleiðenda sem velja aðeins hönnun sem þeir hafa trú á að geti markað sér sess á heimsvísu. Nú í fimmta sinn sem DesignMatch er haldið hafa aldrei borist fleiri umsóknir og því ljóst að bæði hönnuðir og kaupendur eru farnir að sjá hag sinn í þessu öfluga verkefni.

Meðal þeirra sem hafa haft erindi sem erfiði á DesignMatch eru Helga Sigurbjarna og Bryndís Bolladóttir sem heilluðu báðar framleiðandann Normann Kopenhagen með hönnun sinni á snögum, Helga með Stone Hooks og Bryndís með Wool Hooks. Í hönnun Helgu er notaður íslenskur fjörusteinn á meðan íslensk þæfð ull er notuð í hönnun Bryndísar.

Snæfríð og Hildigunnur settust niður með Sebastian Wrong og nokkrum mánuðum síðar kom Calendar fyrir sjónir manna undir merkjum Wrong for Hay.

Twin Within hálsmenin hafa slegið í gegn og þau eru afrakstur stefnumóts hönnuðar við framleiðenda á DesignMatch.

Hinn íslensk/ameríski Chuck Mack hitti framleiðandann Design House Stockholm sem tók Arco borðið undir sinn hatt og kom því í framleiðslu. Nú er borðið að fara í framleiðslu fjórða árið í röð.

Þetta er aðeins brot af þeim mikla ávinningi sem DesignMatch hefur leitt af sér. Í ár hefur fjöldi mikils metinna framleiðenda og hönnunarfyrirtækja boðað komu sína. Þetta eru dönsku fatahönnuðurnir Wood Wood, Mjölk, hið sívinsæla Ferm Living sem fjöldi Íslendinga þekkir af góðu, Normann Copenhagen sem hefur tekið ástfóstri við íslenskt hugvit, Aplace sem gerir skandínavískum fatahönnuðum hátt undir höfði, húsgagnahönnuðurinn Vitra og The Storied Table sem hannar búsáhöld og fleira fyrir heimilið.

DesignMatch gefur íslenskum hönnuðum tækifæri til samtals við þessa mikilsvirtu hönnunarrisa og ef marka má síðustu ár mun ekki líða á löngu þar til við sjáum afrakstur þess.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira