24.08.2026

Dótt­ur­félag Bláa Lónsins og Arion banki undir­rita láns­samning vegna upp­byggingar í Þjórsár­dal

Rauðukambar ehf., dótturfélag Bláa Lónsins hf., hafa undirritað lánssamning við Arion banka um fjármögnun áframhaldandi uppbyggingar í Þjórsárdal. Verkefnið nær meðal annars til Fjallabaðanna, hótelsins Mountain Retreat í Rauðukömbum, Gestastofu Þjórsárdals auk smáhýsa og tjaldsvæðis við Selhöfða. Um er að ræða eina umfangsmestu fjárfestingu sem í hefur verið ráðist í íslenskri ferðaþjónustu.

Þjórsárdalur er eitt merkasta náttúru- og sögusvæði Íslands. Uppbyggingin byggir á langtímasýn um að auka aðgengi að náttúru og sögu dalsins og styrkja hann sem heildstæðan áfangastað, með virðingu fyrir sérstöðu svæðisins að leiðarljósi.

Uppbyggingin mun skapa fjölbreytta möguleika til afþreyingar í Þjórsárdal. Gestastofa Þjórsárdals verður miðstöð fræðslu, með gagnvirkri sýningu og upplýsingamiðstöð þar sem náttúru og sögu svæðisins verða gerð skil.

Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka og Sigríður Margrét Oddsdóttir forstjóri Bláa lónsins við undirritun. Aftari röð: Margrét Ingþórsdóttir viðskiptastjóri á fyrirtækjasviði Arion banka, Hákon Hrafn Gröndal framkvæmdastjóri fyrirtækja- og fjárfestingabankasviðs Arion banka, Guðmunda Ósk Kristjánsdóttir forstöðumaður á fyrirtækjasviði Arion banka og Helgi Júlíusson framkvæmdastjóri fjármálasviðs Bláa lónsins.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira