09.06.2020

Efna­hags­horf­ur 2020-2022: Brot­ist í gegnum kófið

Þau áhrif sem COVID-19 hefur haft, og mun hafa, á íslenskt efnahagslíf þarf ekki að tíunda. Spurningin sem við stöndum frammi fyrir er ekki hvort, heldur hversu mikið er hagkerfið dragast saman. Spá Arion banka gerir ráð fyrir 8,2% samdrætti árið 2020. Utanríkisverslun spilar lykilhlutverk í samdrættinum, enda hafa stærstu útflutningsgreinarnar beðið skipbrots. Þá vegur samdráttur einkaneyslu og fjárfestingar þungt á meðan hið opinbera vinnur á móti samdrættinum í gegnum samneyslu og fjárfestingu.

Þó atvinnuleysi hafi náð nýjum hæðum, ferðaþjónustan sé í sárum og innlend eftirspurn ekki svipur hjá sjón er ýmislegt sem bendir til þess að samdrátturinn verði djúpur en skammvinnur og að hagkerfið taki við sér á næsta ári. Óvissuna þarf hins vegar ekki að kynna fyrir neinum og getur hæglega brugðið til beggja vona. Gert er ráð fyrir að fjárfestingarstigið gefið eftir í ár og á því næsta, þróun sem bæði má rekja til atvinnuvegafjárfestingar og íbúðafjárfestingar. Vegna slaka á húsnæðismarkaði og tiltölulega stöðugrar krónu er útlit fyrir að verðbólgan stoppi stutt yfir verðbólgumarkmiði og dvelji undir 2% stóran hluta næsta árs, þrátt fyrir áframhaldandi launahækkanir.

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans eru til þess fallnar að milda efnahagshöggið og styðja hagkerfið við að ná vopnum sínum á ný. Þá býr hagkerfið að góðum árangri í baráttunni gegn COVID-19, tiltölulega hagstæðri skuldastöðu bæði í opinbera- og einkageiranum og sögulega góðri erlendri stöðu. Búið er að losa um mikið magn fjármuna, nú þarf að koma þeim í vinnu og smyrja hjól atvinnulífsins.

Efnahagshorfur 2020-2022: Brotist í gegnum kófið

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira