28.10.2020

Efna­hags­horf­ur 2020-2023: Öll hríðarkóf birt­ir um síð­ir

Ný hagspá Arion banka gerir ráð fyrir 7,5% samdrætti á árinu 2020. Efnahagshorfur fyrir veturinn hafa versnað á síðustu vikum og útlit fyrir að samdrátturinn nái inn á næsta ár. Efnahagsbatinn fer þar af leiðandi hægt af stað en reiknað er með kröftugum hagvexti árin 2022 og 2023, drifnum áfram af einkaneyslu og útflutningi. Hagspáin miðar við þá forsendu að áhrif COVID-19 á heimsbúskapinn taki að dvína fyrir alvöru á seinni hluta næsta árs. Ef það gerist fyrr eða seinna má í grófum dráttum segja að spáin hliðrist sem því nemur.

Versnandi efnahagshorfur endurspeglast í spá um atvinnuleysi en gert er ráð fyrir að atvinnuleysi haldi áfram að stíga og verði að meðaltali 8,3% á næsta ári. Engu að síður er útlit fyrir tiltölulega lítinn einkaneyslusamdrátt, enda horfa flestir sem ekki verða fyrir atvinnumissi fram á raunlaunahækkun. Þá vega áframhaldandi húsnæðisverðshækkanir og lágt vaxtastig á móti köldum vinnumarkaði. Vegna veikingarþrýstings á gengi krónunnar og sterks húsnæðismarkaðar er útlit fyrir að verðbólgan verði yfir verðbólgumarkmiði Seðlabankans allt næsta ár en hjaðni hratt þegar gjaldeyrisflæði leggst á sveif með krónunni.

Reiknað er með miklum samdrætti atvinnuvegafjárfestingar í ár, þrátt fyrir sögulega lága vexti. Fjármögnunarkostnaður hefur hækkað, þrátt fyrir lækkun stýrivaxta og fyrirheit um magnbundna íhlutun. Slík þróun gæti hægt á fjárfestingarbatanum. Kappkosta þarf við að hlúa að fjárfestingu, sérstaklega atvinnuvegafjárfestingu sem er undirstaða verðmætasköpunar hagkerfisins og tryggja þannig breiðari tekjustofna, bæði fyrir hagkerfið og hið opinbera. Búið er að losa um mikið magn fjármuna, nú þarf að koma þeim í vinnu og smyrja hjól atvinnulífsins.

Efnahagshorfur 2020-2023: Öll hríðarkóf birtir um síðir

Hagvöxtur - framlag undirliða

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira