17.03.2021

Efna­hags­horf­ur 2021-2023: Jafnan er dimm­ast undir dög­un

Ný hagspá Arion banka fyrir árin 2021-2023 var kynnt í dag. Eftir fordæmalausan varnarsigur á síðasta ári, þegar íslenskt hagkerfi fór langt fram úr væntingum greiningaraðila og dróst aðeins saman um 6,6%, er gert ráð fyrir hægfara efnahagsbata í ár. Spáð er 3,3% hagvexti, sem er engu að síður ívið meiri vöxtur en áður var talið, sem er drifinn áfram af einkaneyslu, þjónustuútflutningi í gegnum ferðamennsku og aukinni fjárfestingu. Viðsnúnings í ferðaþjónustu mun þó varla gæta að ráði fyrr en á seinni hluta þessa árs. Hagkerfið á því langan veg fyrir höndum en talið er að það blási byrlega í segl þjóðarskútunnar á næsta ári samhliða auknum ferðamannafjölda.

Þrátt fyrir mikið atvinnuleysi í sögulega samhengi er einkaneyslan í kjörstöðu til að snúa vörn í sókn. Útlit er fyrir áframhaldandi raunlaunahækkunum, óbreyttum stýrivöxtum fram á næsta ár og fasteignaverðshækkunum í takt við söguleg meðaltal. Fasteignaliðurinn mun því ýta undir verðbólguþrýsting en á móti vegur gengisstyrking krónunnar samhliða auknum ferðamannafjölda. Verðbólga er því spáð við verðbólgumarkmið strax á næsta ári. Teikn eru á lofti um að fjárfesting sé tekin að glæðast sem eru sérstaklega jákvæð tíðindi fyrir hagkerfið þar sem fjárfesting, sérstaklega atvinnuveganna, er undirstaða verðmætasköpunar framtíðarinnar.

Efnahagshorfur 2021-2023


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira