01.04.2025

Efna­hags­horf­ur 2025-2027: Með vindinn í fang­ið

Ný efnahagsspá Arion banka gerir ráð fyrir að þjóðarskútan leysi festar eftir hófsaman hagvöxt á síðasta ári, með einkaneyslu og fjárfestingu í stafni. Bjartsýni meðal heimila og fyrirtækja hefur aukist enda er verðbólga að hjaðna, vextir að lækka og fjárhagsleg heilsa almennt séð góð. Innlend eftirspurn verður þar af leiðandi driffjöður hagvaxtar en framlag utanríkisverslunar neikvætt. Niðurstaðan er 1,4% hagvöxtur sem er lítil breyting frá fyrri spá. Samsetningin er hins vegar gjörólík: Í stað útflutningsdrifins hagvaxtar er það einkaneyslan sem stígur fram á stóra sviðið.

Jafnvel þó verulegur innflutningur í tengslum við gagnaver eigi stóran þátt í neikvæðu framlagi utanríkisverslunar í ár liggur í augum uppi að útflutningshorfur hafa versnað. Ekki nóg með að ferðaþjónustan, stærsta útflutningsgrein þjóðarbúsins, eigi undir högg að sækja heldur hefur alþjóðleg efnahagsóvissa aukist verulega að undanförnu, þróun sem gæti leitt til minni eftirspurnar eftir íslenskum útflutningi. Engu að síður reiknum við með lítilsháttar útflutningsvexti í ár þar sem „óhefðbundnari“ útflutningsgreinum, s.s. eldi og lyfjaframleiðslu, hefur vaxið fiskur um hrygg.

Þétt taumhald peningastefnunnar, samhliða lakari útflutningshorfum, hefur dregið úr spennu á vinnumarkaði. Hægt hefur verulega á starfafjölgun og atvinnuleysi er að þokast upp á við og spáum við að sú þróun haldi áfram á yfirstandandi ári. Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott þar sem minni spenna á vinnumarkaði dregur að öðru óbreyttu úr verðbólguþrýstingi og opnar dyrnar fyrir frekari vaxtalækkanir. Krónan, sem er mjög sterk um þessar mundir, gæti hins vegar lagt stein í götu verðhjöðnunar taki hún að veikjast verulega, en í þessari spá er gert ráð fyrir að krónan veikist frá og með seinni hluta þessa árs.

Eins og alltaf er óvissan mikil, ekki síst í alþjóðamálum og ekki eru ekki öll kurl komin til grafar varðandi vaxandi verndarstefnu í alþjóðaviðskiptum. Hvernig svo sem fer teljum við að þjóðarskútan sé vel í stakk búin til að sigla milli skers og báru í úfnum sjó án þess að bíða skipbrots.

Efnahagshorfur 2025-2027: Með vindinn í fangið

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira
2. október 2026

Arion banki fellur frá boðuðum hækkunum og leitast við að halda hækkunum innan við 2,5%

Þann 23. júlí síðastliðinn tilkynntum við um hækkun ýmissa liða í verðskrá okkar sem áttu að taka gildi tveimur mánuðum síðar, eða 23. september. Um var að ræða gjöld sem ekki höfðu hækkað í fjölmörg ár, meðal annars vegna þjónustu þar sem bankinn nýtir þjónustu utanaðkomandi aðila, svo sem dreifingarfyrirtækja sem höfðu hækkað sín gjöld umfram gjöld bankans. Þessari boðuðu verðskrárbreytingu hefur ekki verið hrint í framkvæmd. 

Lesa meira
2. október 2026

Vinningshafar í Sumarlaunaleik Arion

Sumarlaunaleikur Arion er orðinn fastur liður hjá mörgum ungmennum á sumrin. Í ár fengu þau sem lögðu sumarlaunin sín inn á reikning hjá Arion sjálfkrafa þátttökurétt í leiknum og áttu þar með möguleika á að hreppa glæsilega vinninga. 

Lesa meira