30.05.2017

„Ég hjól­aði bara með heil­an­um!“

Erla Sigurlaug Sigurðardóttir, sérfræðingur í markaðsdeild Arion banka, hreppti í dag silfurverðlaun í götuhjólreiðum kvenna á Smáþjóðaleikunum í San Marino. Hún er hluti af íslenska hjólreiðalandsliðinu sem sendi 14 keppendur á leikana, átta karla og sex konur.

Á Íslandi er glænýtt landslið hjólreiðafólks og hefur liðið æft að miklu kappi síðustu mánuði. Þetta er því í fyrsta sinn sem lið keppir fyrir Íslands hönd í hjólreiðum á Smáþjóðaleikunum. Verðlaun Erlu eru þau fyrstu sem Íslendingur hlýtur á Smáþjóðaleikunum þetta árið en vonandi verða þau fleiri. Í götuhjólreiðunum í morgun atti Erla kappi við afar sterka aðila, m.a. frá Lúxemborg og Kýpur, og segir hún keppnina hafa verið afar harða:

„Það er mikil áskorun fyrir Íslending að taka þátt í svona keppni sem er mun harðsnúnari en við eigum að venjast. Hitinn hér er mikill og maður verður að passa að næra sig og drekka vel sem ég hafði reyndar eiginlegan engan tíma fyrir. Við erum að keppa við aðila frá löndum sem hreinlega ala upp hjólreiðafólk á meðan við Íslendingar náum kannski að hjóla úti 4-5 mánuði á ári.

Þetta var alveg frábært. Maður vinnur svona keppni aldrei ein, það var mikil og góð samvinna í liðinu okkar og ég er rosalega þakklát liðinu. Þegar það var kílómeter eftir ákvað ég að byrja bara endasprettinn, ég hafði engu að tapa. Síðustu metrana hjólaði ég svo bara með heilanum því ég átti ekkert eftir í fótunum.“

Við hjá Arion banka erum nýr og afar stoltur hluti af Ólympíufjölskyldu ÍSÍ. Erla er afar þakklát fyrir alla umgjörð ÍSÍ og segir hana til fyrirmyndar. Á vegum þeirra eru nú tæplega 200 einstaklingar í San Marino, þar af 136 keppendur. Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri ÍSÍ er á svæðinu:

„Þetta er náttúrlega alveg virkilega flott afrek. Þetta er fyrsta alþjóðlega afrek íslenskra kvenna í hjólreiðum og frábært að verða vitni að liðsheildinni sem skapaði þennan sigur. Íslensku þátttakendurnir eru landi og þjóð til mikils sóma og þar eru Erla og liðsfélagar hennar engin undantekning.

Það skiptir okkur hjá ÍSÍ alvega gríðarlega miklu máli að hafa Arion banka sem einn af bakhjörlum okkar. Fyrirtækin í Ólympíufjölskyldunni gera okkur hjá ÍSÍ kleift að skapa góða og flotta umgjöf fyrir íslenskt afreksfólk í íþróttum“ segir Líney Rut Halldórsdóttir að lokum, stolt af árangri Íslendinga í San Marino til þessa.“

Samstarfsfólk Erlu óskar henni og liðsfélögum hennar innilega til hamingju með árangurinn og áframhaldandi góðs gengis en síðar í vikunni mun Erla einnig keppa fyrir Íslands hönd í fjallahjólreiðum. Við munum fylgjast spennt með!

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira