23.03.2017

Eignar­hald Arion banka

Mánudaginn 20. mars óskaði Arion banki eftir því við nýja hluthafa bankans, sem tilkynnt var um þann 19. mars, að þeir upplýstu bankann um eignarhald þeirra samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki.

Samkvæmt 19. grein laga um fjármálafyrirtæki er fjármálafyrirtækjunum skylt að birta á vefsíðu sinni yfirlit yfir alla eigendur bankans sem eiga yfir 1% hlutafjár. Í lögunum er jafnframt kveðið á um að sé um félag eða lögaðila að ræða skal birta hvaða einstaklingur eða einstaklingar séu raunverulegir eigendur viðkomandi lögaðila. Er þar átt við einstaklinga sem eiga beina eða óbeina hlutdeild í félagi sem nemur 10% eða meira af hlutafé, stofnfé eða atkvæðisrétti eða aðra hlutdeild sem gerir þeim kleift að hafa veruleg áhrif á stjórnun viðkomandi félags.

Erindi Arion banka til nýrra hluthafa bankans má lesa hér.

Arion banki hefur í dag, 23. mars 2017, uppfært upplýsingar um eigendur bankans á vef sínum í samræmi við upplýsingar úr hlutafélagaskrá og þau svör sem nýir hluthafar veittu bankanum.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira