17.01.2020

Ein hæsta raunávöxt­un margra fjár­festingar­leiða Lífeyris­auka frá upp­hafi

Árið 2019 var farsælt ár fyrir Lífeyrisauka – Viðbótarlífeyrissparnað Arion banka þar sem flestar leiðir sjóðsins skiluðu hárri raunávöxtun í sögulegu samhengi.

Nafnávöxtun fjárfestingarleiða Lífeyrisauka var á bilinu 4,3% til 20,4% á árinu sem samsvarar 1,6% til 17,3% raunávöxtun. Lífeyrisauki er stærsti og fjölmennasti séreignarsjóður á Íslandi sem tekur eingöngu við viðbótarlífeyrissparnaði og býður upp á sjö misáhættusamar fjárfestingarleiðir. Fjárfestingarleiðin Lífeyrisauki 1 skilaði hæstu raunávöxtun sjóðsins á árinu, eða 17,3%, en leiðin inniheldur hæst hlutfall hlutabréfa þeirra fimm leiða sem mynda ævilínu Lífeyrisauka og er sú sem yngri sjóðfélagar greiða í fyrstu árin hafi þeir valið ævilínu. Lífeyrisauki Erlend verðbréf fylgdi fast á hæla Lífeyrisauka 1 og skilaði næsthæstu raunávöxtun fjárfestingaleiða sjóðsins árið 2019, eða alls 16,4%. Lífeyrisauki Erlend verðbréf er ekki hluti af ævilínu en er ætluð til að mæta þörfum þeirra sem vilja fjárfesta í blönduðu eignasafni erlendra verðbréfa.

Erlend hlutabréf voru sá eignaflokkur sem hækkaði mest á árinu, þrátt fyrir ýmsa óvissuþætti og óróleika í alþjóðastjórnmálum. Heimsvísitala hlutabréfa skilaði 25,2% ávöxtun á árinu mælt í Bandaríkjadal eða alls 30,2% í íslenskum krónum, hærri ávöxtun í íslenskum krónum skýrist af veikingu krónunnar á móti helstu viðskiptamyntum.

Innlendur skuldabréfamarkaður skilaði mjög góðri ávöxtun á árinu en lækkandi raunvaxtastig og lækkun á verðbólguálagi voru helstu áhrifaþættir hækkandi virði skuldabréfa. Óverðtryggð ríkisskuldabréf gáfu yfirleitt betri ávöxtun en verðtryggð vegna lækkunar á verðbólguálagi. Þar af voru það lengstu óverðtryggðu skuldabréfin sem skiluðu í heild bestu ávöxtuninni. Ávöxtun óverðtryggðra ríkisskuldabréfa var á bilinu 5,3% til 23% og ávöxtun verðtryggðra var á bilinu 3,7% til 8,9%.

Ávöxtun á innlendum hlutabréfamarkaði var, eftir erfið misseri, fremur góð, en Úrvalsvísitala hlutabréfa hækkaði um 31,4% á árinu. Gengisþróun Marel skýrir þessa hækkun vísitölunnar að miklu leyti en félagið vigtar um helming af vísitölunni.

Fjárfestingarleiðir sem standa sjóðfélögum Lífeyrisauka til boða eru alls sjö og fjölbreytnin því mikil. Þá stendur sjóðfélögum til boða að velja ævilínu þar sem fjárfestingarleið er ákvörðuð út frá aldri sjóðfélaga og markvisst dregið úr áhættu eftir því sem lífeyrisaldur nálgast. Sjóðfélagar eru hvattir til að kynna sér framboðið og leggja mat á það hvort núverandi fjárfestingaleið henti markmiðum, aldri og áhættuvilja.

Ávöxtun fjárfestingarleiða Lífeyrisauka árið 2019

  • Lífeyrisauki 1 skilaði 20,4% nafnávöxtun og 17,3% raunávöxtun

  • Lífeyrisauki 2 skilaði 16,1% nafnávöxtun og 13,1% raunávöxtun

  • Lífeyrisauki 3 skilaði 12,3% nafnávöxtun og 9,4% raunávöxtun

  • Lífeyrisauki 4 skilaði 8,9% nafnávöxtun og 6,1% raunávöxtun

  • Lífeyrisauki 5 skilaði 4,3% nafnávöxtun og 1,6% raunávöxtun

  • Lífeyrisauki, erlend verðbréf skilaði 19,5% nafnávöxtun og 16,4% raunávöxtun

  • Lífeyrisauki, innlend skuldabréf skilaði 7,6% nafnávöxtun og 4,8% raunávöxtun

Ávöxtun Lífeyrisauka 2019
Árleg raunávöxtun Lífeyrisauka (31.12.2019)

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira