11.06.2025

Einar Pálmi nýr for­stöðu­maður fyrir­tækja­ráð­gjaf­ar Arion

Einar Pálmi Sigmundsson hefur tekið við starfi forstöðumanns fyrirtækjaráðgjafar Arion banka. Einar Pálmi er reynslumikill sérfræðingur á sviði fjármála og viðskipta með yfirgripsmikla þekkingu á atvinnulífinu, fjárfestingum og kaupum og sölum á fyrirtækjum.

Einar Pálmi hefur yfir 30 ára reynslu af fjármálamarkaði. Hann var fjárfestingarstjóri Kviku eignastýringar á árunum 2017 til 2024 en starfaði áður hjá HF Verðbréfum, Arion banka, Kaupþingi og Íslandsbanka, þar sem hann starfaði í tæp 15 ár. Einar Pálmi hefur setið í ýmsum stjórnum þar á meðal stjórnum Arctic Adventures, Fálkanum, Já, Gallup, Rarik og Íslenska gámafélaginu.

Einar Pálmi er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands, með MBA-gráðu frá Rotterdam School of Management og með próf í verðbréfaviðskiptum. Hann er jafnframt með ACI Diploma í fjárstýringu og gjaldeyrisviðskiptum.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira
2. október 2026

Arion banki fellur frá boðuðum hækkunum og leitast við að halda hækkunum innan við 2,5%

Þann 23. júlí síðastliðinn tilkynntum við um hækkun ýmissa liða í verðskrá okkar sem áttu að taka gildi tveimur mánuðum síðar, eða 23. september. Um var að ræða gjöld sem ekki höfðu hækkað í fjölmörg ár, meðal annars vegna þjónustu þar sem bankinn nýtir þjónustu utanaðkomandi aðila, svo sem dreifingarfyrirtækja sem höfðu hækkað sín gjöld umfram gjöld bankans. Þessari boðuðu verðskrárbreytingu hefur ekki verið hrint í framkvæmd. 

Lesa meira
2. október 2026

Vinningshafar í Sumarlaunaleik Arion

Sumarlaunaleikur Arion er orðinn fastur liður hjá mörgum ungmennum á sumrin. Í ár fengu þau sem lögðu sumarlaunin sín inn á reikning hjá Arion sjálfkrafa þátttökurétt í leiknum og áttu þar með möguleika á að hreppa glæsilega vinninga. 

Lesa meira