03.12.2021

El­ín­borg Kvar­an tek­ur við starfi for­stöðu­manns markaðs­mála og þjónustu­þró­un­ar Arion banka

Elínborg Kvaran hefur tekið við starfi forstöðumanns markaðsmála og þjónustuþróunar hjá Arion banka. Elínborg kemur frá Landsbankanum þar sem hún hefur starfað frá árinu 2006, þar af sem forstöðumaður markaðsmála og samskipta frá árinu 2010. Áður gegndi Elínborg starfi markaðsstjóra Tryggingamiðstöðvarinnar og starfaði í markaðsdeild Toyota á Íslandi.

Elínborg hefur setið í fjölmörgum stjórnum, m.a. Inspired by Iceland, Ímark - félag markaðsfólks á Íslandi og Menningarnætur Reykjavíkur. Elínborg er viðskiptafræðingur að mennt.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira