21.01.2020

Endur­greiðsl­ur vegna Far­vel ehf.

Arion banki vill benda viðskiptavinum sínum á að ef greitt var fyrir ferð með Farvel ehf. með greiðslukorti útgefnu af bankanum þá geta viðskiptavinir fengið ferðina endurgreidda að fullu að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

Skilyrðin eru eftirfarandi:

  • Þjónustuloforð Farvel var ekki uppfyllt, þ.e. ferðin var felld niður.

  • Viðskiptavinur hefur gert kröfu um endurgreiðslu í gegnum þjónustugátt á vef Ferðamálastofu og skilað með kröfunni viðeigandi gögnum fyrir 8. mars 2020. Ferðamálastofa endurgreiðir aðeins hluta ferðarinnar.

  • Innan 30 daga eftir að formlegt svar berst frá Ferðamálastofu þarf að óska eftir endurgreiðslu frá Arion banka á eftirstöðvum kortafærslunnar vegna kaupa á ferðinni.

    • Með endurkröfubeiðni til Arion banka þurfa að fylgja eftirfarandi gögn:
      - Útfyllt og undirritað endurkröfueyðublað sem er á vef bankans.
      - Ferðagögn frá Farvel (bókunarstaðfesting, farseðlar, kvittanir fyrir greiðslu, pakkasamningur o.s.frv.).
      - Formlegt svar frá Ferðamálastofu vegna óskar um endurgreiðslu.

Mikilvægt er að senda beiðni um endurkröfu til Arion banka sem fyrst eftir að formlegt svar fæst frá Ferðamálastofu til að tryggja að krafan falli ekki á tíma.

Ástæða þess að ekki er hægt að gera endurkröfu vegna greiðslu með greiðslukorti fyrr en formlegt svar liggur fyrir frá Ferðamálastofu er að aðeins er hægt að gera endurkröfu á þann hluta kortafærslunnar sem ekki fæst endurgreiddur í gegnum tryggingarfé Farvel hjá Ferðamálastofu.

Við hvetjum því alla sem eiga kröfu á Farvel að lýsa kröfu í gegnum þjónustugátt Ferðamálastofu fyrir 8. mars og hafa svo samband við Arion banka um leið og formlegt svar fæst frá Ferðamálastofu.

Hægt er að senda fyrirspurnir á arionbanki@arionbanki.is.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira