26.10.2020

Er­indi Bene­dikts á Um­hverf­is­degi atvinnu­lífsins

Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka flutti erindi á Umhverfisdegi atvinnulífsins þann 14. október síðastliðinn og fjallaði um græna framtíð og stefnu bankans í umhverfismálum. Hann sagði bankann mikilvægan hlekk í hagkerfinu sem hafi áhrif á hvert stefni þegar kemur að aukinni sjálfbærni. Þá fjallaði hann um þann risavaxna vanda sem fylgir losun gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftið og um áhrif þess að ganga um of á villta náttúru og raska jafnvægi vistkerfisins.

Arion banki setti sér umhverfisstefnu árið 2015 og hefur minnkað kolefnissporið í eigin rekstri um 30% en markmiðið er að draga úr losun um a.m.k. 40% fyrir árið 2030. Frá árinu 2023 verða einungis keyptir bílar fyrir starfsemina sem ganga fyrir 100% endurnýjanlegum orkugjöfum og samstarf hefur verið við Kolvið um kolefnisjöfnun rekstursins svo eitthvað sé nefnt. Benedikt fjallaði einnig um einstök verkefni bankans sem snúa að sjálfbærni s.s. eignastýringu, græn innlán, vistvæn bílalán og íbúðalán til umhverfisvottaðs húsnæðis.

Samantekt á erindi Benedikts og fyrirlesturinn má nálgast hér.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira