11.07.2016

Euromo­ney vel­ur Arion banka sem besta fjár­festingar­bankann á Ís­landi

Alþjóðlega fjármálaatímaritið Euromoney hefur valið Arion banka sem besta fjárfestingarbankann á Íslandi árið 2016. Í rökstuðningi Euromoney er m.a. horft til þess að Arion banki vann á síðasta ári markvisst að uppbyggingu íslenska verðbréfamarkaðarins með skráningum Eikar, Reita og Símans á Aðallista Nasdaq Ísland. Þar kemur einnig fram að bankinn sé með góða hlutdeild í hlutabréfa-, skuldabréfa- og gjaldeyrismiðlun.

Að auki horfir Euromoney til þess að Arion banki hefur verið ötull í að aðstoða viðskiptavini við skuldabréfaútgáfu og þannig tekið virkan þátt í uppbyggingu skuldabréfamarkaðarins. Í því samhengi má nefna skuldabréfaútgáfu Landsvirkjunar, Garðabæjar, Eikar og Reita á árinu 2015.

Iða Brá Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs, tók við viðurkenningunni fyrir hönd Arion banka.

“Það er ánægjulegt að Arion banki skuli fá þessa viðurkenningu. Það er ekki spurning í mínum huga að lykillinn að þessum árangri er gott samstarf við okkar viðskiptavini. Ég lít svo á að okkar hlutverk sé einfaldlega að styðja við okkar viðskiptavini í þeirra verkefnum og okkar markmið er að gera það vel þannig að árangur náist.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira