28.06.2017

Eva Ceder­balk nýr stjórnar­formaður Arion banka

Eva Cederbalk var kjörin formaður stjórnar Arion banka á stjórnarfundi mánudaginn 26. júní. Eva, sem var kjörin í stjórn bankans á hluthafafundi 23. júní, hefur mikla stjórnunarreynslu eftir að hafa starfað innan sænska fjármálakerfisins til margra ára.

Eva er í dag forstjóri Cederbalk Consulting AB en starfaði áður m.a. sem forstjóri Netgiro Systems AB og framkvæmdastjóri Dial Försäkring AB. Hún er með meistaragráðu í hagfræði frá Stockholm School of Economics.

Stjórn Arion banka skipa nú: Eva Cederbalk formaður, Guðrún Johnsen varaformaður, Brynjólfur Bjarnason, Jakob Már Ásmundsson, John P. Madden, Kirstín Þ. Flygenring, Måns Höglund og Þóra Hallgrímsdóttir. Kirstín er fulltrúi Bankasýslu ríkisins í stjórninni en aðrir eru tilnefndir af Kaupskilum.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira