17.11.2022

Fasteigna­skrá óað­gengi­leg um helg­ina og því ekki hægt að fara í gegnum greiðslu­mat

Vegna flutninga á kerfum Fasteignaskrár frá Þjóðskrá til HMS verða öll kerfi Fasteignaskrár óaðgengileg frá klukkan 13 föstudaginn 18. nóvember og mögulega alveg til miðnættis á sunnudag. Greiðslumatskerfi okkar á arionbanki.is nýtir gögn frá Fasteignaskrá og því verður ekki hægt að fara í gegnum greiðslumat á meðan á flutningnum stendur.

Frá hádegi á morgun, föstudag, og fram eftir helginni verður þar af leiðandi ekki hægt að klára umsóknir um lán sem krefjast greiðslumats. Á þetta við um íbúðalán, bílalán og stærri fyrirgreiðslur.

Við biðjumst velvirðingar á þessu en strax á mánudag verður hægt að fara í greiðslumat á vefnum og klára lánaumsóknir.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira