25.09.2018

Ferða­manna­landið Ís­land: Mjúk lending eða maga­lending?

Greiningardeild Arion banka kynnti á fundi í Arion banka í morgun niðurstöður greiningar á ferðaþjónustunni undir yfirskriftinni Ferðamannalandið Ísland: Mjúk- eða magalending?

Meðal þess sem fram kom er að umsvif íslensku flugfélaganna hafa mikið að segja um þróun fjölda og samsetningu ferðamanna hér á landi. Eins og staðan er í dag eru flugfargjöld of ódýr og þau þurfa að hækka. Að öðru óbreyttu, til dæmis ef krónan helst áfram sterk, gæti hækkun flugfargjalda leitt til fækkunar ferðamanna.

Á fundinum kom jafnframt fram að gert er ráð fyrir lítilli fjölgun ferðamanna til landsins á næstu árum og í grunnsviðsmynd sem sett var fram fjölgar ferðamönnum um 1,4% á næsta ári og 2,4% árið 2020. Fjölgun hótelherbergja á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki haldið í við fjölgun erlendra ferðamanna hingað til lands og svo virðist vera að við höfum ekki farið fram úr okkur í hóteluppbyggingu, enn sem komið er. Fyrir þjóðarbúið í heild sinni fer neysluhegðun ferðamanna að skipta meira máli þar sem ekki er hægt að treysta á tekjuvöxt í gegnum aukinn fjölda ferðamanna.

Glærur frá fundinum eru aðgengilegar hér.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira